Quarashi hefur gefið út nýtt lag Freyja Þórisdóttir skrifar 24. júní 2026 15:56 Sveitin Quarashi hefur nú gefið frá sér lagið „Do it again“ en í september heldur hún svo þrjátíu ára afmælistónleika í Laugardalshöll. Facebook/Quarashi Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi.
Quarashi er ein áhrifamesta rapp-rokkhljómsveit Íslands og var stofnuð í Reykjavík árið 1996. Sveitin vakti fyrst athygli hérlendis með blöndu af hip-hoppi, rokki og fönki en vakti síðan alþjóðlega athygli með plötunni Jinx árið 2002. Þar naut lagið Stick 'Em Up mikilla vinsælda, fékk spilun á MTV og varð eitt þekktasta lag sveitarinnar. Sveitin gaf út fimm plötur á árunum 1997 til 2004: Quarashi (1997), Xeneizes (1999), Kristnihald undir jökli (2001), Jinx (2002) og Guerilla Disco (2004), en sú síðastnefnda seldist í 50.000 eintökum í Japan einu saman. Lagði upp laupana árið 2005 Útgáfa nýs lags markar því tímamót fyrir sveitina, enda er um að ræða fyrsta nýja efnið í nokkurn tíma og enn eitt merki þess að Quarashi sé aftur orðið virkt afl í íslensku tónlistarlífi en þegar þeir gáfu út lagið Chicago árið 2016 sögðu meðlimir að ný plata væri í vinnslu. Hins vegar hefur hún enn ekki litið dagsins ljós og því er spennandi að sjá hvort þetta nýja lag sé til marks um að plata sé væntanleg. Fáir hefðu þó spáð því fyrir tveimur áratugum að Quarashi ætti eftir að snúa aftur. Sveitin sló í gegn á alþjóðavísu í byrjun aldarinnar með plötunni Jinx, fór í umfangsmiklar tónleikaferðir erlendis og hitaði meðal annars upp fyrir stór nöfn á borð við Eminem og The Prodigy. Álagið tók þó sinn toll og árið 2005 lagði sveitin upp laupana. Sölvi Blöndal, stofnandi og pródúsent sveitarinnar, hefur síðar lýst því að hann hafi verið fullkomlega búinn á því þegar Quarashi hætti. Í hlaðvarpsviðtali árið 2022 sagðist hann hafa ákveðið að snúa baki við tónlistarbransanum og hefði ekki ætlað að snerta trommukjuða aftur. Hann sneri sér í kjölfarið að hagfræðinámi og varð síðar áberandi í íslensku viðskiptalífi. Stórafmælistónleikar í september Nú virðist sveitin hins vegar ekki aðeins ætla að rifja upp gamla sigra heldur kemur útgáfa nýs lags frá Quarashi á sama tíma og sveitin undirbýr stærstu tónleika sína í mörg ár. Quarashi fagnar 30 ára afmæli sínu með tónleikum í Laugardalshöll 19. september þar sem stefnt er að því að flytja helstu lög ferilsins ásamt því að fá til liðs við sig gesti sem komu að sögu sveitarinnar á ýmsum tímum. Þeir sem eru skráðir fyrir nýja laginu eru Sölvi Blöndal, Egill Thorarensen, Höskuldur Ólafsson, Gísli Galdur, Hrannar Ingimarsson, Arnar Guðjónsson, Gaukur Úlfarsson og Glenn Schick.
Tímamót Tónleikar á Íslandi Mest lesið Getur siðblinda frá afanum dúkkað upp hjá barnabörnum? Áskorun GusGus drottning og frú selja í Hafnarfirði Lífið Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Menning Athafnahjón selja sjarmerandi hús í Vesturbæ Lífið Quarashi hyggst „Do it again“ Tónlist Bylgjulestin lét sig ekki vanta í eina af stærstu veislum ársins á Þingvöllum Lífið samstarf „Þetta átti allt að gerast og ég er þakklát í dag“ Lífið Jóhann Örn fulltrúi Íslands í Mr. Bear Europe Lífið Kjarnorkuverkfræði-draumurinn rætist í París Lífið Þrír fulltrúar Íslendinga í hópi topp 20 undir 30 Menning Fleiri fréttir Quarashi hyggst „Do it again“ Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Hipsumhaps rýfur þögnina „Ég er skíthræddur“ Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Bonnie Tyler vöknuð úr dái Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Mugison þakkar innilega fyrir sig Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2026 Blóð, sviti og tár skemmtilegra en að prumpa út lögum Bó átti að syngja á nýju lagi Stefáns: „Örlögin gripu í taumana“ Stendur með Bríeti í deilunni við Pálma Sjá meira