Borgarlínan og Línuborg Soria Þórður Már Sigfússon skrifar 25. júní 2026 13:31 Í opinberri umræðu um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu er Borgarlínunni gjarnan lýst sem tæknilegu innviðaverkefni, þ.e. nýjum vögnum, sérreinum og greiðari almenningssamgöngum. En verkefnið ristir hins vegar dýpra. Borgarlínan er ekki bara samgöngubót; hún er skipulagsafl. Hún byggir á hugmyndafræðilegri sýn línuborgarinnar (Ciudad Lineal) sem spænski verkfræðingurinn Arturo Soria y Mata kynnti til sögunnar árið 1882. Þótt rúm ein og hálf öld skilji verkefnin að, eru þau af sama meiði. Borgarlínan er í raun línuborg Soria, lögð yfir núverandi byggð til að styrkja hryggjarstykki höfuðborgarsvæðisins. Mótunarafl samgangna Í kjölfar iðnvæðingarinnar á síðari hluta 19. aldar glímdu evrópskar borgir við eins konar tilvistarkreppu. Hið hefðbundna þróunarferli að stækka til allra átta út frá eldri kjarna megnaði í mörgum tilvikum ekki lengur að hýsa þann fjölda sem streymdi úr sveitunum. Soria sá að lausnin fólst í breyttu borgarformi. Í stað þess að þrýsta byggðinni út á við valdi hann að þróa byggðina meðfram öflugum samgönguás. Þessi sýn markaði upphaf þess sem í dag kallast samgöngumiðað skipulag (transit-oriented development eða TOD). Kjarninn í hugsun Soria var sá að almenningssamgöngur ættu að móta form og þéttleika byggðarinnar. Sýn Soria byggðist ekki á óvissuþáttum heldur á vel ígrunduðu heildarskipulagi þar sem grunnhugmyndin var jafn einföld og hún var skýr. Burðarásinn átti að vera 30 til 40 metra breitt aðalstræti þar sem sporvagna- og járnbrautateinar lágu í miðjunni, rammaðir inn af þéttum trjáröðum og lundum. Sjálf byggðin beggja vegna var skýrt afmörkuð þannig að heildarbreidd línuborgarinnar fór aldrei yfir 500 metra, sem tryggði að allir íbúar væru í innan við fimm mínútna göngufjarlægð frá samgönguásnum. Það er nákvæmlega þessi hugmyndafræði sem knýr Borgarlínuna. Höfuðborgarsvæðið hefur um áratugaskeið þróast á forsendum einkabílsins, þar sem byggðin hefur breitt úr sér í formi lágreistrar úthverfaútþenslu. Borgarlínunni er ætlað að snúa þessari þróun við. Hún á ekki að þjóna óheftri útþenslu, heldur mun hún virka sem segull fyrir vöxt inn á við. Hún á að skilgreina hvar og hvernig borgin þéttist á næstu áratugum. Línuborgin lögð yfir núverandi byggð Stóri munurinn á verkefni Soria í Madríd árið 1894 og Borgarlínunnar í dag er upphafspunkturinn. Soria teiknaði sína línuborg á autt blað í útjaðri Madrídar. Borgarlínan stendur frammi fyrir flóknara verkefni: Hún er línuborg sem leggja þarf ofan á þegar gróna, bílamiðaða byggð. Borgarlínan mun mynda nýjan, samfelldan ás sem bindur saman ólíka borgarkjarna, frá háskólasvæðunum og miðborginni, austur um Suðurlandsbraut og Ártúnshöfða, og suður í Kópavog og Hafnarfjörð. Með því að skilgreina þennan skýra ás er verið að innleiða línuborgarmódelið í reynd. Innan þessa áss verður til nýtt jafnvægi í anda Soria. Á sama hátt dregur Borgarlínan innviði og þjónustu að sér. Meðfram henni mun rísa blönduð byggð, sem breytir samgönguæðum svæðisins úr dæmigerðum malbiksræmum í lifandi og aðgengileg borgarrými þar sem allt er innan seilingar á tveimur jafnfljótum. Hryggjarstykkið styrkt Borgarlínan mætir iðulega þeirri gagnrýni að hún sé of dýr eða að hún henti ekki dreifðri byggð höfuðborgarsvæðisins. En sú gagnrýni byggir á þeim misskilningi að samgöngukerfi eigi eingöngu að leysa núverandi umferðarvanda. Ef við rýnum í verkefnið með augum Soria verður Borgarlínan að skipulagslegri nauðsyn. Hún er hryggjarstykkið sem heldur dreifðri borg saman. Með því að þétta byggðina meðfram línunni er komið í veg fyrir frekari ásókn í óröskuð svæði í útjaðri borgarinnar. Þetta speglar hugsjón Soria, sem vildi einmitt vernda „viðfeðmt ræktunarland og óspillta náttúru“ með því að takmarka breidd línuborgarinnar við 500 metra. Þótt línuborgin í Madríd hafi á sínum tíma runnið út í sandinn vegna fjármagnsskorts, lifir kjarni hennar í hönnun og skipulagi borga nútímans. Borgarlínan er skýrt dæmi um þessa arfleifð. Við þurfum bara að líta á þessi tvö hugtök, Borgarlínu og Línuborg, til að sjá líkindin. Nafngiftirnar sjálfar afhjúpa ræturnar. Með því að leggja þennan ás yfir höfuðborgarsvæðið erum við loksins að færa almenningssamgöngur úr óbeinu þjónustuhlutverki yfir í að verða hið sterka mótandi afl öflugs borgarsamfélags. Höfundur er skipulagsfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Borgarlína Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun Skoðun Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Sjá meira
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar