Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar 26. júní 2026 15:03 Það er áhyggjuefni að umræðan um þjóðaratkvæðagreiðslu tengda aðildarviðræðum við Evrópusambandið sé á góðri leið með að kljúfa þjóðina. Af eðlilegum ástæðum spyrja því margir hvort sú vegferð sé áhættunnar virði, enda markmiðin afar óljós. Og eðlilega undrast margir valið á tímasetningu atkvæðagreiðslunnar. Af hverju þótti þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu nú, framkvæmd sem gæti kostað þjóðina hátt í einn milljarð? Hverjar verða mögulegar afleiðingar þessarar vegferðar? Væntanlega ekki í líkingu við þau ragnarök sem skóku samfélagið í aðdraganda þess að þjóðin missti sjálfstæðið á Sturlungaöld, en þó kannski örlagaríkari en margir hyggja. „Við treystum þjóðinni“ Í síðustu Alþingiskosningum voru engin teikn á lofti um að kjörnir fulltrúar á þingi vildu taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið. Einungis einn þingflokkur lét í ljós skýra stefnu í þeim efnum. Sá flokkur hlaut aðeins 11 þingsæti af 63, en tókst samt af óskiljanlegum ástæðum að stýra því að pólitísk orka þingsins hefur að mestu farið í umræðu um málið og fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu það sem af er kjörtímabilinu. Það hljómar svolítið eins og „sókratísk kaldhæðni“, þegar oddviti litla þingflokksins boðar slíka atkvæðagreiðslu með orðunum: „Við treystum þjóðinni“ en vill samt halda öllum upplýsingum frá henni eins og Sókrates gerði forðum. Sjálfur lætur litli þingflokkurinn sem hann viti hvorki haus né sporð á öllu bröltinu, þrátt fyrir að oddvitinn hafi átt tugi funda og samtala við fulltrúa ESB undanfarna mánuði. Um hvað? Hin sókratíska kaldhæðni kristallast í því að enginn fær aðgang að gögnum um þessi samtöl. Farið er með fundargerðir, tölvupósta og minnisblöð eins og ríkisleyndarmál að hætti MI 6. Þáttur fjórða valdsins Á höfuðdaginn næsta mun þjóðin skiptast í tvær fylkingar þegar hún leitast við að svara spurningunni: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“. Klofningurinn birtist sem tveir andstæðir pólar, já-fylking og nei-fylking. Samkvæmt hefðbundum skilningi hefur fjórða valdið það hlutverk að veita pólitískt kjörnum fulltrúum aðhald. Kapphlaup fjölmiðla við að skapa spennu milli fylkinganna tveggja í stað þess að sinna hlutverki sínu kann því að hljóma ankannalega. Það er mat undirritaðs að meginstraumsfjölmiðlar landsins, sér í lagi hinn títtnefndi „miðill allra landsmanna“, hafi nefnilega tekið þá stefnu að leggjast frekar á árar með já-fylkingunni en nei-fylkingunni og eflaust samfélagsmiðlar einnig. 10 ár frá Brexit „Miðill allra landsmanna“, RÚV, virðist gæddur álíka hæfileikum og Heimdallur í Himinbjörgum forðum, sem þótti hafa svo skarpa sjón að hann gat séð hundrað rastir frá sér jafnt í dagsbirtu sem náttmyrkri, þurfti minni svefn en fuglarnir og heyrði grasið gróa. Af stakri snilld þefar RÚV uppi fréttir, viðtöl og viðburði nótt sem nýtan dag, sem kunna að hæfa tilteknum pólitískum sjónarmiðum og innrætingu, sé í lagi í þágu umræddrar já-fylkingar. Í hádegisfréttum RÚV 23. júní var til dæmis endurflutt frétt úr The Guardian undir yfirskriftinni „10 ár frá Brexit“. Þar vitnaði fréttakona ríkismiðilsins í könnun, sem vinstrisinnaðasta dagblað Bretlands hafði látið gera um afstöðu ungs fólks til Brexit og reynslunnar frá því að Bretland ákvað að yfirgefa ESB. Markhópurinn var Z-kynslóðin svonefnda sem var á barnsaldri árið 2016 þegar atkvæðagreiðslan um úrsögn úr Evrópusambandinu fór fram. Svarendur höfðu með öðrum orðum ekki kosningarétt á þeim tíma og því síður þroska til að skilja hvað hékk á spýtunni. Hæpið er að þetta unga fólk, sem nú er á aldrinum 18-28 ára, hafi enn náð þroska til að bera saman aðstæður þá og nú. „Bremain“ - „Regrexit“ Árið 2012 varð hin mergjaða orðasamsetning „Brexit“ (Britain Exit) til, þegar umræða hófst fyrir alvöru um mögulega útgöngu Breta úr Evrópubandalaginu. Síðan hafa skotið upp kollinum fjölmargar álíka samsetningar, eins og „Bremain“ (Britain remain) og „Regrexit“ (Regret Exit). Niðurstöður nýlegrar könnunar The Guardian voru einmitt á þá leið að Z-kynslóðin sá eftir útgöngu (Regrexit) og 60% vildu ganga inn aftur (Bremain). Nú eru sumir fjölmiðlar farnir að túlka þessar niðurstöður, hvort sem er meðvitað eða ómeðvitað, eins og þær endurspegli skoðun allra Breta. Í Speglinum 24. júní bætti fréttastofa RÚV ofan á eigin snilld og Heimdallar frá Himinbjörgum með sérkennilegri túlkun á þessum niðurstöðum já-fólki í hag. Stjórnandinn hafði m.a. viðtal við íslenskan prófessor við London School of Economics, sem tiltók galla í viðhorfum og málflutningi Brexit-sinna og klykkti út með þessum orðum: „Ég er nokkurn veginn fullviss um það að eftir tíu ár verður Bretland annaðhvort komið aftur inn eða á mjög hraðri leið inn. Þetta er allt að gerast og miklu hraðar en maður hefði búist við“. Á hvaða rökum gæti prófessorinn hafa byggt þessa skoðun? Hver gæti orðið hvatinn að baki því að Bretland yrði annaðhvort komið aftur inn eða á mjög hraðri leið inn í Evrópusambandið að tíu árum liðnum? Það þegar öllum mætti ljóst vera að þetta gamla samband Evrópuríkja, sem var upphaflega stofnað til að tryggja frið og stöðugleika í álfunni, hefur verið að þróast yfir í gírugt herveldi þjakað af efnahagssamdrætti, hækkandi orkuverði, flóttamannavanda og lýðræðishalla? Höfundur er háskólakennari á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun