Rúmlega þrjátíu bjargað úr rústunum en tugþúsunda enn saknað Áróra L Davíðsdóttir skrifar 29. júní 2026 00:04 Tugþúsunda er enn saknað í Venesúela í kjölfar tveggja stórra jarðskjálfta í síðustu viku. Getty Forseti Venesúela segir 33 hafa verið dregna á lífi upp úr rústum bygginga sem hrundu í tveimur stórum jarðskjálftum sem lögðu þjóðina í rúst. Um 800 byggingar eru taldar hafa hrunið í kjölfar jarðskjálftanna sem riðu yfir landið á miðvikudag í síðustu viku. Enn er talið að margir Venesúelabúar séu fastir undir rústum þeirra.
Jarðskjálftarnir tveir, 7,2 og 7,5 að stærð, urðu með 39 sekúndna millibili. Staðfest mannfall er 1.450 en tugþúsunda er enn saknað segir í umfjöllun BBC. Björgunarsveitir og Venesúelabúar vinna hörðum höndum við að ná fólki upp úr rústum bygginga. Forseti Venesúela, Delcy Rodríguez, segir 33 hafa verið bjargað lifandi úr rústunum, þar á meðal tvo ellefu ára drengi. Hjálparstofnanir telji fyrstu 48 til 72 klukkustundirnar skipta sköpum til að ná fólki lifandi úr rústunum og því dvíni vonin um að finna þá sem enn er saknað með hverri klukkustund sem líður. Í umfjöllun Al Jazeera er greint frá því að sextugri gamalli konu hafi verið bjargað úr húsarústum á Carabayida-svæðinu en hún hafði verið föst þar í 86 klukkustundir. Hún hafi í kjölfarið verið flutt á sjúkrahús í viðkvæmu ástandi. Venesúelabúar sem leita að ástvinum og nágrönnum hafi notað skóflur, stórvirkar vinnuvélar, reipi og berar hendur ofan á hrúgum af hruninni steypu um allt La Guaira, eitt af þeim fylkjum sem urðu verst úti. Alþjóðlegar björgunarsveitir hafa bæst í hópinn síðustu daga og byrjað að klifra í gegnum rústirnar. Venesúelabúar eru margir ósáttir við viðbrögð stjórnvalda við hamförunum og segja þau bæði hæg og óskilvirk. Íbúar segjast heyra í fólki undir rústunum og bíði óþreyjufullir eftir vinnuvélum til aðstoðar við björgun.
Venesúela Náttúruhamfarir Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Tengdar fréttir Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Venesúelsk kona á Íslandi bíður milli vonar og ótta eftir fregnum af bróður sínum og fjölskyldu sem lentu undir braki hótelbyggingar í öflugum jarðskjálfta í landinu á miðvikudag. 27. júní 2026 17:32 Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag. 26. júní 2026 07:43 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira
Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Venesúelsk kona á Íslandi bíður milli vonar og ótta eftir fregnum af bróður sínum og fjölskyldu sem lentu undir braki hótelbyggingar í öflugum jarðskjálfta í landinu á miðvikudag. 27. júní 2026 17:32
Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Björgunarlið vinnur nú hörðum höndum að því að leita í rústum bygginga í Caracas höfuðborg Venesúela og á fleiri svæðum í norðurhluta landsins eftir jarðskjálftana öflugu sem riðu yfir í fyrradag. 26. júní 2026 07:43