Körfubolti

„Frá­bært að fá Martin aftur“

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Craig Pedersen freistar þess að koma Íslandi á HM í fyrsta sinn.
Craig Pedersen freistar þess að koma Íslandi á HM í fyrsta sinn. sýn sport

Craig Pedersen, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í körfubolta, er hæstánægður með að hafa endurheimt Martin Hermannsson fyrir mikilvæga leiki gegn Ítalíu og Bretlandi í undankeppni HM. Sigur í öðrum hvorum leiknum kemur Íslandi á lokastig undankeppninnar.

Ísland vann Ítalíu ytra í nóvember á síðasta ári, 76-81, og Pedersen er bjartsýnn á að endurtaka leikinn í Laugardalshöllinni annað kvöld.

„Það yrði stórkostlegt að vinna Ítalíu aftur. Þeir koma til okkar með mjög sterkt lið, eins og alltaf. Við höfum unnið þá áður á heimavelli og vonandi komum við með orkumikinn leik, náum í sigur og förum svo til Bretlands til að ná í annan sigur þar,“ sagði Pedersen á landsliðsæfingu í Ásgarði.

Klippa: Viðtal við Craig Pedersen

Eftir sigurinn á Ítalíu tapaði Ísland fyrir Bretlandi, 84-90, á heimavelli.

„Fyrri leikurinn við Breta var vonbrigði, varðandi orkustigið okkar í fyrri hálfleiknum. Við komum með mikla orku í síðustu tólf mínúturnar en það var of mikið að lenda tuttugu stigum undir gegn góðu liði Breta. En við sýndum að við getum keppt við þá og vonandi sjáum við fulla orku frá fyrstu mínútu núna,“ sagði Pedersen.

Þurfa að hitta vel í upphafi leiks

Pedersen segir að góð byrjun geti gert mikið fyrir íslenska liðið gegn því ítalska.

„Við höfum getað unnið þá upp á síðkastið og það hefur verið stórkostlegt. Eitt lykilatriði þar hefur verið að hitta vel í byrjun, sem hefur gefið okkur sjálfstraust. Við höfum svo getað haldið stillingu og þessu sjálfstrausti út leikina, jafnvel þegar þeir komast á siglingu og ná 4-6 stiga forskoti. Vonandi spilum við aftur svona vel og höfum orkuna til að vinna þá,“ sagði Pedersen.

Martin og Elvar passa svo vel saman

Eitthvað er um skakkaföll í íslenska hópnum en Martin er kominn aftur inn í hann eftir að hafa misst af leikjunum gegn Litáen. 

„Það er frábært að fá Martin aftur. Þeir Elvar [Már Friðriksson] passa svo vel saman því þeir geta báðir gert svo mikið. Hin liðin geta ekki bara einbeitt sér að öðrum þeirra og þeir hjálpa hvor öðrum vel. Við þurfum á góðum leik frá þeim að halda til að vinna,“ sagði Pedersen að lokum.

Viðtalið við Pedersen má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.


Tengdar fréttir

Fleiri augu á mér í þessari deild

„Þetta er bara eitthvað sem kom frá umboðsmanninum. Auðvitað þekki ég svæðið og hef komið þarna en þú veist, þetta er bara körfuboltaleg ákvörðun og síðan náttúrulega hjálpar til að það sé beint flug og maður er náttúrulega með fjölskyldu og það er þægilegt að fara fram og til baka. En þetta er hörkudeild,“ segir Kristinn Pálsson á landsliðsæfingu í vikunni.

„Nýi skólinn“ og Norður­landa­blæti í Bil­bao

Tryggvi Snær Hlinason hefur ásamt norskum samherja sínum búið til norræna menningu í spænska körfuboltaliðinu Bilbao Basket. Hann nýtur lífsins á Norður-Spáni en er nú mættur til Íslands til að hjálpa landsliðinu að komast á HM í fyrsta sinn.

„Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“

Elvar Már Friðriksson mun líklega á næstu dögum ákveða næsta skref sitt á körfuboltaferlinum, eftir dvöl sína í Póllandi og óvænt stopp á Tenerife í lok leiktíðar. Það skref mun hann taka með fjölskyldu sinni sem dvalið hefur á Íslandi í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×