Viðskipti innlent

Mango opnar í Kringlunni

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Tískuvörumerkið Mango opnaði sína fyrstu verslun hérlendis í lok síðasta árs í Smáralind.
Tískuvörumerkið Mango opnaði sína fyrstu verslun hérlendis í lok síðasta árs í Smáralind. Getty

Verslun spænska tískuvörumerkisins Mango var opnuð á laugardaginn í Kringlunni. 

Í fréttatilkynningu kemur fram að bæði dömu- og herralína Mango sé í boði í versluninni. Verslunin verði í rými á aðalgangi Kringlunnar á annarri hæð og verlsunarrýmið spanni 667 fermetra. 

Mango opnaði sína fyrstu verslun hérlendis í lok síðasta árs í Smáralind.

Tískuvörumerkið var fyrst stofnað árið 1984 af bræðrunum Isak Andic og Nahman Andic og var fyrsta verslunin opnuð árið 2000. Um er að ræða hraðtískuverslun með yfir 2700 verslanir í yfir hundrað löndum um allan heim.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×