Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Eiður Þór Árnason og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 1. júlí 2026 21:47 Valgerður Rúnarsdóttir er framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ. Vísir/arnar „Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar.
Lögregla hefur lagt hald á um 200 kíló af kókaíni á aðeins sex mánuðum. Það er næstum tvöfalt meira en allt síðasta ár og ljóst að eftirspurn eftir efnunum er mikil hér á landi. „Það er auðvitað ekki gott ef viðhorfið gagnvart þessu efni er að þetta sé eitthvað annað en það sem það er, sem er bara mjög hættulegt fíkniefni sem hefur mikil áhrif á heilann og getur valdið geðrofseinkennum meira að segja. Fólk getur orðið árásargjarnt og reitt og þetta veldur miklum glundroða. Eftirköstin eru svo akkúrat öfug, mikil vanlíðan, þreyta og pirringur þannig að þetta er ekki léttúðugt efni og líka fíkniefni og það er auðvelt að ánetjast því,“ bætti Valgerður við í kvöldfréttum Sýnar. „Það er alveg ljóst að það er mikil eftirspurn og hún hefur aukist eftir kókaíni. Við höfum séð aukningu á neyslu þess meðal þeirra sem leita meðferðar, bara statt og stöðugt frá aldamótum en það kom mikil aukning þarna rétt fyrir hrun. Síðan dró úr því og svo kom aftur enn þá meiri aukning og þegar Covid kom þá dró úr því aftur en núna erum við aftur á uppleið eins og við sjáum þetta í tölunum hjá okkur.“ Borga 25 þúsund krónur fyrir grammið Ef horft er á þann hluta notenda sem leitar sér aðstoðar vegna fíknar hjá SÁÁ er mest um að ræða fólk á aldrinum 20 til 45 ára, að sögn Valgerðar. „Á þeim aldri eru þetta svona 40 prósent af öllum sem koma til okkar sem eru með kókaínfíkn ásamt oftast áfengisfíkn og fleiri efnum.“ Fram hefur komið að fólk þurfi oft að greiða á bilinu 20 til 25 þúsund krónur fyrir gramm af kókaíni. Þrátt fyrir þetta virðist vera gríðarleg eftirspurn eftir efninu sem sumir neyta mörgum sinnum í viku. „Þetta er mjög öflugt fíkniefni og hefur gríðarleg áhrif á heilann, örvandi efni eins og amfetamín, sum lyf sem eru notuð og MDMA. Þetta eru allt örvandi vímuefni og það hefur alltaf verið talsverð svoleiðis neysla á Íslandi en kókaínið virðist taka stærra pláss þegar það er gott í ári,“ segir Valgerður. Upplýsingum um neyslu á kókaíni hefur einnig verið safnað með mælingum á skólpi og í neyslukönnunum á vegum landlæknis. Kókaínneysla hafi ekki einungis áhrif á einstaklinginn heldur sömuleiðis samfélagið í kringum hann. „Fólk sem er í mikilli neyslu af þessu tagi getur til lengdar ekki séð fyrir sér eða haldið áfram í vinnu eða verið hluti af fjölskyldu, smátt og smátt fer að kvarnast úr því og fólk þarf þá að leita aðstoðar. Það er ekki lengur hluti af eðlilegu samfélagi þegar neyslan er orðin mikil og þetta hefur náttúrulega mikinn kostnað í för með sér, alveg eins og öll önnur fíkniefni og áfengi,“ segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.
Straumsvíkurmálið Fíkniefnabrot Fíkn Heilbrigðismál SÁÁ Tengdar fréttir Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 1. júlí 2026 14:08 Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Dómsmálaráðherra segir stærstu fíkniefnamál ársins sýna styrk lögreglunnar en líka mikla eftirspurn eftir sterkum fíkniefnum á Íslandi. Hún boðar frumvarp í haust sem á að styrkja heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi. 1. júlí 2026 12:43 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira
Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Einn þeirra níu sem eru í haldi lögreglu vegna rannsóknar á innflutningi á sögulegu magni fíkniefnis með flutningskipi sem kom til hafnar í Straumsvík hlaut dóm fyrir morð í Danmörku árið 2011. Hann hefur áður verið í haldi lögreglu grunaður um stórfellt fíkniefnamisferli. 1. júlí 2026 14:08
Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Dómsmálaráðherra segir stærstu fíkniefnamál ársins sýna styrk lögreglunnar en líka mikla eftirspurn eftir sterkum fíkniefnum á Íslandi. Hún boðar frumvarp í haust sem á að styrkja heimildir lögreglu gegn skipulagðri brotastarfsemi. 1. júlí 2026 12:43