Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Lovísa Arnardóttir skrifar 2. júlí 2026 10:25 Inga segir viðmiðin snúast um að grípa börn fyrr og að umhyggju. Vísir/Vilhelm Mennta- og barnamálaráðuneytið undirbýr útgáfu landsviðmiða um skólasókn grunnskólanemenda fyrir skólaárið 2026–2027. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu.
Verkefnahópur á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins hefur skilað tillögum að fimm aðgerðum til að samræma skráningu og viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn í grunnskólum. Tillögurnar byggja á menntastefnu til ársins 2030 og annarri aðgerðaáætlun menntastefnu 2025–2027. Aðgerðirnar fimm lúta að samræmdum landsviðmiðum um viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn, samræmdum og stöðluðum viðverukóðum til skráningar á skólasókn, samræmdum umsóknum um undanþágur og frávik frá skólaskyldu og skólasókn, skilgreindum mælanlegum markmiðum og svo síðast endurskoðun reglugerða og aðalnámskrár. Fjallað hefur verið um það í vetur að vísbendingar séu um að allt að þúsund börn sæki ekki skóla á Íslandi vegna skólaforðunar. Í tilkynningu frá stjórnarráðinu segir að skólasókn skipti máli og þegar barn missi úr skóla geti það verið vísbending um að skoða þurfi stöðu þess betur og bregðast við áður en vandinn verður stærri. Lagt er til að skólaárið 2026–2027 verði lærdómsár þar sem viðmiðin verði reynd í samstarfi við skólasamfélagið, sveitarfélög og aðra haghafa. Reynslan verði nýtt til að þróa viðmiðin áfram og undirbúa frekari umbætur. Viðmið um viðbrögð við ófullnægjandi skólasókn. Myndin er úr nýrri skýrslu starfshópsins. Stjórnarráðið Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, segir verkefnið mikilvægt skref í þá átt að börn og fjölskyldur fái skýrari og samræmdari stuðning. „Börn eiga ekki að detta á milli kerfa vegna þess að við skráum hluti með ólíkum hætti eða bregðumst misjafnlega við eftir sveitarfélögum. Með samræmdum viðmiðum fá skólar skýrari verkfæri, foreldrar meiri fyrirsjáanleika og börn betri möguleika á stuðningi á réttum tíma,“ segir Inga. Hvert með sitt ólíka kerfi Í tilkynningu stjórnarráðsins segir að sveitarfélög á Íslandi hafi á síðustu árum þróað hvert sitt viðbragðskerfi til að bregðast við ófullnægjandi skólasókn. Þau séu hins vegar ólík milli sveitarfélaga og hafi þau óskað eftir samræmdum viðmiðum. Mikilvægt sé að samræma þau til að fá betri sýn yfir skólaforðun þvert á landið. Samkvæmt tilkynningu kallaði mennta- og barnamálaráðuneytið alla aðilana að borðinu. Þessi samræmdu viðmið séu sett fram af skólasamfélaginu og unnin í samstarfi við Grunn – Félag fræðslustjóra, Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins, Félag grunnskólakennara, Skólastjórafélag Íslands, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og Barna- og fjölskyldustofu. Fyrstu viðbrögð innan skólans Samræmdu landsviðmiðin verða samkvæmt tilkynningu leiðbeinandi tilmæli til grunnskóla og setja ramma um viðbrögð þegar skólasókn barns versnar. Fyrstu viðbrögð eiga að fara fram innan skólans, með samtali við barn og foreldra og leit að lausnum. Ef vandinn eykst kemur til aðkoma skólaþjónustu, félagsþjónustu, barnaverndar eða annarra sérhæfðra þjónustuaðila eftir þörfum. Þannig byggja viðmiðin á þeirri sýn að ófullnægjandi skólasókn sé ekki eingöngu skólamál. Hún getur líka verið velferðarmál og í sumum tilvikum heilbrigðismál. „Þetta snýst fyrst og fremst um að grípa börnin fyrr og bregðast við af umhyggju og festu. Við viljum að skólar, foreldrar, sveitarfélög og þjónustukerfi barna hafi sameiginlega sýn og skýr hlutverk,“ segir Inga. Markmiðið sé einfalt: að ekkert barn hverfi smám saman úr skólasamfélaginu án þess að tekið sé eftir því og gripið inn í.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Leikskólar Framhaldsskólar Sveitarstjórnarmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira