Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar 6. júlí 2026 17:30 Brexit nýtur ekki sannmælis Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um aðildarviðræður við ESB er mikilvægt að fjölmiðlar falli ekki í þá gryfju að reyna að hafa áhrif á almenningsálitið með misvísandi fréttaflutningi um mál sem auðvelt er að tengja við þessar mikilvægu kosningar. Nýlega, þegar kvöldfréttatími Sýnar fjallaði um afsögn Keirs Starmer, forsætisráðherra Bretlands, lét álitsgjafinn Eiríkur Bergmann þá skoðun í ljós að Brexit væri ein helsta ástæða efnahagslegra áskorana Breta um þessar mundir. Álitsgjafinn, sem ekki er hagfræðimenntaður, var ekki beðinn um að rökstyðja mál sitt í viðtalinu. Í framhaldinu var dregin sú ályktun af fréttakonunni og álitsgjafanum að neikvæð efnahagsleg áhrif Brexit væru mikilvæg skýring þess að meirihluti Breta vilji nú ganga aftur í ESB. Með þessari einföldu fréttaskýringu var reynt að senda þau skilaboð til áhorfenda að það væri skynsamlegt fyrir Íslendinga að endurtaka ekki mistök Breta. Sambærileg vinnubrögð eru líka reglulega viðhöfð í fréttatímum RÚV. Ýmsar fréttaveitur, sem voru andsnúnar útgöngu Breta úr ESB á sínum tíma, halda reglulega þeirri skoðun á lofti að Brexit hafi skaðað efnahag Bretlands. Stundum er reynt að gefa þessari tilgátu trúverðugleika með því að vitna í ritgerðir hagfræðinga eða annarra sérfræðinga. Þar er hagvöxtur í Bretlandi fyrir og eftir Brexit gjarnan borinn saman við lönd sem hafa upplifað mikla efnahagslega uppsveiflu, en sjaldnast við ríki eins og Þýskaland, Frakkland og Ítalíu, sem skapa nærri tvo þriðju hluta af vergri landsframleiðslu evrusvæðisins. Hagvöxtur í Bretlandi meiri en í lykilríkjum ESB síðan Brexit Um það er ekki deilt að Bretland tekst á við efnahagslegar áskoranir ekki síður en lykilríki ESB, svo sem Þýskaland, Frakkland og Ítalía. Þar á meðal má nefna lítinn hagvöxt, öldrun íbúa, vaxandi velferðarkostnað og lækkandi framleiðni efnahagslífsins. Þessar áskoranir eru hins vegar enn erfiðari viðureignar í þremur stærstu hagkerfum ESB en í Bretlandi. Árlegur hagvöxtur hefur til dæmis verið meiri að meðaltali í Bretlandi (1,4%) á tímabilinu eftir Brexit (2017–2025) en í Þýskalandi (0,6%), Frakklandi (1,2%) og Ítalíu (1,1%). Árlegur vöxtur útflutnings hefur einnig verið hærri í Bretlandi að meðaltali en í þessum þremur ESB-ríkjum á sama tímabili. Það væri því eðlilegra að spyrja: Hvers vegna hefur hagvöxtur í lykilríkjum ESB verið svo slakur og lægri en í Bretlandi á tímabilinu eftir Brexit? Er yfirhöfuð líklegt að hagvöxtur í Bretlandi hefði verið meiri innan ESB en utan, þegar horft er til slaks árangurs þessara sömu lykilríkja sambandsins á þessu tímabili? Draghi-skýrslan svarar þessari spurningu á þann veg að ESB sé í efnahagslegri tilvistarkreppu. Hún stafar af minnkandi samkeppnishæfni, lágri framleiðni og lítilli nýsköpun í helstu aðildarríkjum sambandsins. Nokkrar af helstu fréttaveitum heims hafa greint frá nýlegum tillögum stjórnenda Volkswagen um að segja upp allt að 100 þúsund starfsmönnum vegna mikilla rekstrarerfiðleika. Slík aðgerð yrði ein stærsta endurskipulagning bílaiðnaðarins á heimsvísu til þessa. Á árinu 2024 hafði Volkswagen náð samkomulagi við verkalýðsfélög um að fyrirtækið gæti sagt upp um 30 þúsund starfsmönnum fram til ársins 2030, en stjórnendur telja þær aðgerðir duga skammt í ljósi versnandi rekstrarskilyrða. Uppi eru hugmyndir um að breyta þeim verksmiðjum Volkswagen sem lokað yrði í nýjar framleiðslulínur fyrir skriðdreka og hergögn, sem gæti aukið enn frekar á þrýsting þýskra stjórnvalda við að viðhalda stuðningi við stríðsrekstur og önnur átök í heiminum. Helstu ástæður þessara vaxandi erfiðleika Volkswagen og þýska bílaiðnaðarins í heild sinni eru hækkandi orkuverð, vaxandi samkeppni frá rafbílaframleiðendum í Kína – ekki síst vegna opinberra niðurgreiðslna þar í landi – og hár framleiðslukostnaður vegna strangra reglugerða ESB. Þýskur bílaiðnaður er gríðarlega mikilvægur fyrir þýskt efnahagslíf sem og evrópska hagkerfið allt, en áætlað er að bílaiðnaðurinn og öll afleidd starfsemi skapi um 11 prósent af vergri landsframleiðslu Þýskalands. Af einhverjum ástæðum hafa fréttastofur RÚV og Sýnar ekki séð ástæðu til að fjalla um þessa alvarlegu stöðu þýska bílaiðnaðarins í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-aðild. Á síðustu 12 mánuðum hefur hlutabréfaverð í helstu bílafyrirtækjum Þýskalands, svo sem Volkswagen og BMW, lækkað mikið. Þróunin er skýr mælikvarði á þær áhyggjur sem fjármálagreinedur hafa af þessum lykiliðnaði í evrópska hagkerfinu. Samtök atvinnulífs í Bretlandi andsnúin ESB-aðild Í aðdraganda Brexit lögðust stærstu samtök atvinnulífsins í Bretlandi gegn útgöngu landsins úr ESB. Í dag hefur viðhorf lykilsamtaka í bresku atvinnulífi breyst, og þau vilja hvorki ganga aftur í sambandið né auka miðstýrð efnahagsleg tengsl við það. Mörg bresk fyrirtæki hafa þegar aðlagað sig að því reglugerðarfrelsi sem Brexit færði þeim og vilja ekki hverfa til fyrra horfs. Talið er að mörg þeirra myndu frekar flytja starfsemi sína til ríkja utan Evrópu ef Bretland gengi aftur í ESB, til þess að missa ekki þann samkeppnisávinning sem hlýst af sjálfstæðu regluverki. Umræður og upplýsingar sannfærðu Breta um mikilvægi Brexit Í umræddum kvöldfréttatíma Sýnar voru meginskilaboðin þau að nýlegar skoðanakannanir sýndu að meirihluti Breta vildi að stjórnvöld skoðuðu aftur inngöngu í ESB. Hins vegar var þess ekki getið í fréttinni að ári fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Brexit sýndu sömu skoðanakannanir að tveir þriðju hlutar Breta voru hlynntir áframhaldandi veru í ESB. Sú afstaða gjörbreyttist hins vegar þegar kosningabaráttan hófst og almenningur fékk greiðari aðgang að upplýsingum um kosti og galla sambandsins. Margir álitsgjafar telja að það sama muni gerast ákveði stjórnvöld í Bretlandi að efna til nýrrar þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild. Betri upplýsingar um raunverulega stöðu efnahagslífsins innan ESB muni sannfæra almenning um að þangað sé ekki betri kjör að sækja. Sú staðreynd að samtök atvinnulífsins séu nú andsnúin ESB-aðild, ólíkt því sem var í aðdraganda Brexit, muni heldur ekki hjálpa málstað já-sinna. Niðurlag Það tók Breta langan tíma að ljúka samningaviðræðum við ESB um endanlega útgöngu úr sambandinu. Það má því segja að Brexit hafi einungis haft raunveruleg efnahagsleg áhrif í Bretlandi síðustu fjögur til fimm árin. Bretland er nú loks í þeirri stöðu að geta sjálft ráðið framtíð sinni án fyrirmæla frá ESB. Í ljósi lítils hagvaxtar í lykilríkjum ESB, svo sem Þýskalandi, Frakklandi og Ítalíu á tímabilinu eftir Brexit, er ólíklegt að efnahagslegur hagur Bretlands væri markvert betri ef landið hefði verið áfram í sambandinu. Hins vegar má færa rök fyrir því að það sé mikill kostur fyrir Bretland að standa utan ESB á þessum tímum mikillar efnahagslegrar óvissu innan sambandsins. Sumir hagfræðingar ganga jafnvel svo langt að segja að fram undan sé öld lægðar eða hnignunar í Evrópu, sambærileg við þá niðurlægingaröld sem Kína upplifði frá miðri 19. öld fram til miðrar þeirrar 20. Höfundur er sérfræðingur í opinberri stefnumótun með doktorspróf auk meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu og rekstrarhagfræði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Brexit Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun