Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Magnús Jochum Pálsson skrifar 9. júlí 2026 11:20 Ástvaldur og Monika hafa skipulagt metnaðarfulla dagskrá með hjálp fjölda annarra í Dýrafirði næstu daga. Þegar ljóst var að Dýrafjarðardagar yrðu ekki haldnir í ár tóku tvö systkini frá Þingeyri málin í eigin hendur og stofnuðu fjölskylduhátíðina Litla Dýra. Hátíðin stendur yfir 9. til 12. júlí og á dagskrá verður strandblaksmót, grillveisla, fjórhjólaferðir, glersmiðja, uppistand með Gísla Einarssyni, björgunarbátaferðir, gusuganga og ýmislegt.
Klæðskerinn Ástvaldur Mateusz Kristjánsson og Monika Janina Kristjánsdóttir, grafískur hönnuður og fatahönnuður, eru hugmyndarík og metnaðarfull systkini frá Þingeyri í Dýrafirði. Þeim fannst ótækt að Dýrafjarðardagar skyldu daga uppi þannig þau ákváðu að taka bæjarhátíðina í sínar hendur og blása lífi í þorpið á Þingeyri. Matti og Monika eru hugmyndafrjó, skapandi og metnaðarfull fyrir sínum gamla heimabæ. „Við tókum púlsinn í þorpinu og nágrenni um hvað þorpsbúar myndu vilja sjá í sumar á Þingeyri. Niðurstaðan var skýr – fólk vildi hátíð og við vildum það líka. Það sem byrjaði sem lítil hugmynd varð fljótt að miklu stærra verkefni en við áttum von á,“ segir Ástvaldur, yfirleitt kallaður Matti. Litli Dýri eru fjögurra daga fjölskylduhátíð með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla aldurshópa, íþróttaviðburðum, markaði, grillveislu, leiksýningu, fjölda tónlistaratriða og ýmiss konar fjölskylduskemmtun. „Við fengum ótrúlega marga með okkur í verkefnið sem vildu styðja okkur og gera þetta að veruleika. Á aðeins einum mánuði tókst okkur að setja saman fjölbreytta dagskrá fyrir alla. Það var ótrúlegt að sjá hvað samfélagið tók vel í þetta,“ segir Monika. Þingeyri stendur við Dýrafjörð á eyri undir Sandfelli. Mikilvægt að snúa vörn í sókn „Okkur hefur alltaf þótt vænt um Dýrafjarðardaga, sem er stærsti viðburður bæjarins, og við eigum margar ógleymanlegar minningar frá þeirri hátíð. Á síðustu árum hafa margar bæjarhátíðir víða út á landi dalað og jafnvel lagst af. Okkur finnst mikilvægt að snúa þeirri þróun við og leggja okkar af mörkum til að halda slíkri hefð og menningu á lífi heima í Dýrafirði. Það er eins og við séum að skila til baka því sem samfélagið gaf okkur þegar við vorum að alast upp,“ segir Monika. Markmið systkinanna var þó ekki að endurskapa Dýrafjarðardaga í sömu mynd heldur að byggja ofan á hefðina með nýjum hugmyndum. Dynjandi er skammt frá Þingeyri. „Við vildum ekki bara halda hátíð heldur líka þróa hana áfram,“ segir Monika og bætir við: „Við vildum bæta við smiðjum, nýrri dagskrá og upplifunum sem höfðu ekki verið hluti af hátíðinni áður.“ Hátíðin hefst formlega í kvöld með leiksýningunni Draugum Dýrafjarðar í Kómedíuleikhúsinu í Haukadal. Á morgun verður boðið upp á glersmiðju í grunnskólanum á Þingeyri, fjórhjólaferðir upp á Sandafell, strandblaksmót í Íþróttamiðstöð Þingeyrar, hesta á kirkjutúninu og sögustund í Blábankanum. Ein af nýjungunum hátíðarinnar er Litla gusugangan sem verður haldin á morgun en þar eru þátttakendur leiddir á milli þriggja gusa við strönd Þingeyrar. Á milli gusa gefst þátttakendum kostur á að skella sér í sjósund áður en ferðinni lýkur í sundlaug Þingeyrar. Um kvöldið verður Taco-veisla á Kex hóteli, uppistand með Gísla Einarssyni í Kómedíuleikhúsinu og barrölt fram til miðnættis. Laugardagskvöldið 11. júlí verður fjölbreytt tónleikadagskrá í útilistaverkinu Tankinum þar sem koma fram hljómsveitir, tónlistarfólk og plötusnúðar, meðal annars Amor Vincit Omnia, Bellamix69, $leazy, Mv Elyahsyn, Berglind Ágústsdóttir, Smjörvi, Sviptivindar, Tomi G og fleiri. Hátíðin snýst fyrst og fremst um að þjappa fólki saman, efla samfélagið og skapa vettvang þar sem íbúar, brottfluttir Dýrfirðingar og gestir geta komið saman, notið samveru og skapað nýjar minningar. „Við vonum að fólk komi saman, njóti samverunnar og fari heim með nýjar minningar. Það er það sem góð bæjarhátíð snýst um,“ segja systkinin. Hátíðinni lýkur á sunnudag með sölutjaldi Höfrungs þar sem boðið verður upp á súpu, samlokur, tælenskan mat, kandýfloss og gotterí og svo verður keppt til úrslita á strandblaksmóti íþróttafélagsins Höfrungs. Nánari upplýsingar um hátíðina má sjá á Instagram-síðu hátíðarinnar.
Ísafjarðarbær Tímamót Mest lesið Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Lífið Eitt „læk“ getur sprengt sambandið – hjá bæði tvítugum og áttræðum Áskorun Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sendum Möggu Stínu í Eurovision Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fleiri fréttir Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Sjá meira