Íslensku liðin hófu leik á Evrópumótinu í holukeppni Andri Broddason skrifar 10. júlí 2026 11:24 Íslenska karlalandsliðið í holukeppni vann sína viðureign við Svíþjóð í gær. GSÍ Evrópumót landsliða í golfi hefur hafið göngu sína og er Ísland að taka þátt þar. Í gær hófst holukeppnin og stóðu íslensku liðin sig vel þar.
Karlalandsliðið mætti Svíþjóð en spilaðar eru fimm viðureignir í hverjum leik. Í einni viðureigninni er spilaður fjórmenningur þar sem tveir kylfingar vinna saman og slá boltann til skiptis. Í hinum fjórum viðureignunum er einn kylfingur sem leikur á móti öðrum. Aron Emil Gunnarsson og Skúli Gunnar Ágústsson unnu fjórmenningsviðureignina þar sem þeir voru þrem holum yfir þegar aðeins tvær voru eftir. Veigar Heiðarsson vann sína viðureign á sautjándu holu þar sem hann var tveim holum yfir þegar aðeins átjánda var eftir. Sigurður Bjarki Blumenstein spilaði jafna viðureign og var allt jafnt eftir átján holur. Þurfti þá að spila nítjándu holuna til að knýja fram sigurvegara og náði Sigurður Bjarki að vinna þá holu. Tómas Eiríksson Hjaltested rétt tapaði sinni viðureign líkt og Gunnlaugur Árni Sveinsson sem náði ekki sínum besta hring. Ísland vann því viðureignina 3-2 og tryggði sig með sigrinum í efstu deild Evrópumótsins á næsta ári. Ísland er sem stendur í B-deildinni og á leik gegn Wales í undanúrslitum B-deildarinnar. Kvennaliðið í æsispennandi bráðabana Kvennaliðið mætti Hollandi og rétt tapaði viðureigninni 3-2 eftir bráðabana. Keppni í fjórmenningnum réðst á tuttugustu holu. Eva Kristinsdóttir spilaði frábærlega og vann sína viðureign örugglega en hún var sex holum yfir þegar aðeins fimm voru eftir. Elsa Maren Steinarsdóttir vann sína viðureign þægilega þar sem hún var þrem holum yfir þegar tvær voru eftir. Íslenska kvennalandsliðið er létt í lund.GSÍ Karen Lind Stefánsdóttir rétt tapaði sinni viðureign og Perla Sól Sigurbrandsdóttir tapaði gegn sterkum andstæðingi og staðan jöfn 2-2. Úrslitin réðust því í fjórmenningsviðureigninni. Fjóla Margrét Viðarsdóttir og Guðrún J. Nolan Þorsteinsdóttir spiluðu vel í fjórmenningnum og var allt jafnt eftir átján holur. Leikar voru enn þá jafnir eftir nítjándu en hollensku leikmennirnir unnu aðra holu bráðabanans og þar með viðureignina. Kvennaliðið mætir Tékklandi á morgun og má búast þar við annarri jafnri viðureign.
Íslendingar erlendis Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira