„Ég er svo lélegur í golfi“ Andri Broddason skrifar 13. júlí 2026 07:31 Rory Mcllroy var ekki sáttur við öll höggin sín þegar hann endaði í sjöunda sæti Genesis Scottish Open mótsins. vísir/getty Rory Mcllroy endaði í sjöunda sæti Genesis Scottish Open mótsins en hann var ekki alltaf sáttur með höggin sín. Það er hughreystandi fyrir hinn venjulega kylfing að þeir bestu eiga líka léleg högg.
Á lokadegi Genesis Scottish Open var kominn smá pirringur í Rory Mcllroy sem er einn vinsælasti kylfingur í heimi. Hann var staddur á sextándu braut en höggið hans sem átti að fara inn á flötina misheppnaðist. We have all been there. pic.twitter.com/1IiFjYLgF2— PGA TOUR (@PGATOUR) July 12, 2026 Hann missti höggið vinstra megin við flötina og á meðan boltinn var í loftinu kallaði hann: „Ég er svo lélegur í golfi.“ Það geta flestir kylfingar tengt við þessa tilfinningu þegar boltinn fer ekki þangað sem hann átti að fara og manni fallast hendur. Hins vegar eru margir ósammála því að Mcllroy sé lélegur í golfi og þrátt fyrir þetta högg endaði hann hringinn á sex höggum undir pari. Hann endaði mótið í sjöunda sæti og var tólf höggum undir pari. „Höggið sem ég sló með 6-járninu var lélegt golfhögg. Svo í því augnabliki var ég lélegur í golfi,“ sagði Rory eftir hringinn. Mcllroy var fimm höggum á eftir Tom Kim sem náði í sinn fyrsta sigur á PGA-mótaröðinni í þrjú ár.
Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Dagskráin í dag: Meistaradeildin og risa leikur í körfunni hér heima Sport Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira