Lífið

Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólar­geisla

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Egill Fannar og Íris Freyja eiga von á öðru barni.
Egill Fannar og Íris Freyja eiga von á öðru barni. Instagram

Fyrirsætan og fegurðardrottningin Íris Freyja Salguero Kristínardóttir og athafnamaðurinn Egill Halldórsson eiga von á öðru barni. Fyrir eiga þau dótturina Mayu Sól og segja mikla gjöf að fá að stækka fjölskylduna.

Hjúin kynntust í janúar árið 2022 og hafa því verið par í rúm fjögur ár. Þau búa í raðhúsi í Garðabæ og hafa verið dugleg að ferðast og njóta lífsins saman. 

Íris greindi frá barnaláninu á Instagram í dag og skrifar:

„Endalaust þakklæti. Það að fá að bæta við öðrum sólargeisla í fallegu fjölskylduna okkar er svo mikil gjöf, við vitum að Maya Sól á eftir að vera svo góð og blíð stóra systir.“

Íris Freyja er fædd árið 1998 og er hvað þekktust fyrir fyrirsætustörf en hún keppti í Miss Universe Iceland árið 2021. Þar hafnaði hún í öðru sæti og var valin Miss Supranational Iceland. Athafnamaðurinn Egill Fannar er fæddur árið 1993 en hann er annar eigandi Gorilla vöruhúss og fyrirtækisins Wake Up Reykjavík






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.