Körfubolti

Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jeremy Pargo er ekki hættur að spila körfubolta.
Jeremy Pargo er ekki hættur að spila körfubolta. Vísir/Anton

Bandaríski körfuboltamaðurinn Jeremy Pargo spilaði ekki síðasta leikinn sinn á ferlinum þegar Grindavík tryggði sér titilinn því kappinn er þessa dagana að spila í BIG3-deildinni.

Pargo skoraði 48 stig í lokaleiknum þegar Grindavík tryggði sér titilinn og skildi meðal annars eftir körfuboltaskóna sína sem verða væntanlega hér eftir til sýnis í íþróttahúsi Grindavíkur.

Pargo spilar með Boston Ball Hogs í BIG3-deildinni í sumarfríinu en þar spilar hann undir stjórn goðsagnarinnar Gary Payton sem spilaði sautján tímabil í NBA-deildinni. Liðsfélagar Pargo hjá Ball Hogs eru Garlon Green, Deshawn Stephens og Quincy Miller.

Pargo er stigahæstur í deildinni eftir fjóra leiki og er einnig meðal þeirra stoðsendingahæstu. Enginn hefur skorað fleiri þriggja stiga körfur og þá er hann sá eini sem hefur skorað þrjár fjögurra stiga körfur.

Big3-deildin er 3-á-3 körfuboltadeild stofnuð af rapparanum og leikaranum Ice Cube og kaupsýslumanninum Jeff Kwatinetz. Deildin samanstendur af átta liðum þar sem leikmannahóparnir innihalda bæði fyrrverandi NBA-leikmenn og alþjóðlega leikmenn.

Reglur Big3-leikja víkja frá opinberum reglum 3-á-3 körfubolta eins og FIBA heldur utan um. Deildin hóf göngu sína árið 2017 og fer fram utan keppnistímabils NBA.

Á vellinum eru þrjú „fjögurra stiga svæði“, en eitt er á miðlínu vallarins og hin tvö eru í 40 gráðu fjarlægð frá miðlínunni. Til að skora fjögur stig verður fótur leikmanns að snerta einhvern hluta skothringsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×