„Þetta voru algjörlega mannleg mistök“ Árni Sæberg skrifar 16. júlí 2026 16:22 Margrét Rós segir teymið á bak við myndskeiðið umtalaða einfaldlega ekki hafa vitað hversu mikið mjólkin kostar. Vísir Margrét Rós Sigurjónsdóttir, sem fullyrti í gær í myndskeiði á Instagramsíðu SJÁ að mjólkurlítrinn kostaði 380 krónur, segir að um mannleg mistök hafi verið að ræða og málið allt sé „svolítið vandræðalegt.“
Myndskeið sem birtist á Instagramsíðu samtakanna SJÁ, sem berjast fyrir því að þjóðin greiði atkvæði með því að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný, í gær vakti talsverða athygli, áður en því var snarlega eytt. Þar sást Margrét Rós segja mjólkurlítrann á Íslandi kosta 380 krónur. Hið rétta er að í Bónus kostar hann 234 krónur. Tilgangur myndskeiðsins var að bera saman kaupmátt lágmarkslauna á Íslandi annars vegar og í Svíþjóð hins vegar, hvað innkaup á mjólk varðaði. Þannig sagði Margrét Rós að maður á lágmarkslaunum á Íslandi gæti keypt 39 mjólkurfernur fyrir laun eins dags en maður á lágmarkslaunum í Svíþjóð gæti keypt 63. Tóku myndskeiðið út eftir að fjallað var um það Fosvarsmenn SJÁ virðast hafa áttað sig nokkuð fljótt á mistökunum þar sem myndskeiðinu var eytt af Instagramsíðu samtakanna aðeins nokkrum mínútum eftir að það fór í loftið. Myndskeiðið má sjá í spilaranum hér að neðan: Það var gert eftir að Viðskiptablaðið fjallaði um málið og setti í samhengi við hið þekkta mjólkurfernupróf, sem margur stjórnmálamaðurinn hefur fallið á í gegnum tíðina. Ekki ætlunin að segja rangt frá Vísir náði tali af Margréti Rós og bar undir hana hvað hefði farið úrskeiðis við gerð myndskeiðsins. „Þetta voru algjörlega mannleg mistök. Einhvers staðar á leiðinni byrjum við að vinna með vitlaust verð og einhvern veginn áttaði sig enginn á því fyrr en um seinan.“ Aðstandendur myndskeiðsins hafi tekið það út um leið og þeir urðu þess varir að þar væri ekki farið rétt með, enda vildu þeir alls ekki hafa myndskeið í loftinu sem innihéldi rangfærslur. Breytir ekki upplifun hennar í Svíþjóð Margrét Rós segir að þrátt fyrir að ekki hafi verið farið rétt með mjólkurverð breyti það ekki tilgangi myndskeiðsgerðarinnar. Aðalatriðið hafi verið að sýna fram á að þótt laun séu lægri í Svíþjóð, þá fari minni peningur í mat þar en á Íslandi, byggt á persónulegri reynslu hennar af búsetu þar. „En það er ógeðslega mikilvægt að vanda sig og hérna vorum við of fljótfær. Við erum búin að læra af því og svona mistök munu ekki endurtaka sig. Ég vona að allir vandi sig, hvort sem þeir eru já eða nei megin, og komi fram með réttar upplýsingar. Af því að þetta er svolítið vandræðalegt.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Samfélagsmiðlar Mest lesið Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fleiri fréttir Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Sjá meira