Ríflega fimm þúsund látnir í kjölfar skjálftanna Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júlí 2026 12:16 Fólk og björgunarsveitarmenn leituðu linnulaust að fórnarlömbum í rústum eyðilagðra bygginga sólarhringana eftir skjálftana. Jorge Rodriguez greindi frá fjölda látinna á dögunum. Getty Fjöldi slasaðra í jarðskjálftunum sem riðu yfir Venesúela í júní er talinn vera í kringum sextán þúsund og sjö hundruð en hamfarirnar urðu ríflega fimm þúsund manns til bana. Skjálftarnir, sem voru 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með um mínútu millibili þann 24. júní og lögðu strandríkið La Guaira, norður af Caracas, í rúst.
Nú hafa venesúelsk yfirvöld tilkynnt að þau hafi fengið þrjú hundruð fjörutíu og sex milljónir dala, eða um frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum til enduruppbyggingar eftir jarðskjálftana. Er þetta meðal þess sem fram kemur í franska fréttamiðlinum Le Monde. Þar er einnig haft eftir Jorge Rodriguez, forseta þjóðþingsins, sem greindi frá því á Telegram að alls séu fimm þúsund sextíu og níu látnir en að flest dauðsföllin hafi orðið við strandlengjuna. Fjöldi slasaðra er talinn óbreyttur en sextán þúsund sjö hundruð og fjörutíu eru skráðir slasaðir. Þá hefur komið fram að flestir hafi þegar verið útskrifaðir af sjúkrahúsi. Þá er greint frá því að Kristalina Georgieva, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, hafi staðfest úthlutun fjármunanna og sagt á samfélagsmiðlinum X að stofnunin hefði „unnið með lykilaðilum að því að hjálpa Venesúela að fá aðgang að eigin fjármunum hjá sjóðnum vegna brýnna mannúðarþarfa“. Um tuttugu þúsund manns sem misstu heimili sín í skjálftunum búa þessa stundina í yfirfullum búðum, þar sem margar skortir vatnsveitu og viðunandi hreinlætisaðstöðu, er fram kemur í umfjöllun Le Monde.
Venesúela Náttúruhamfarir Jarðskjálfti í Venesúela 2026 Tengdar fréttir Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag. 27. júní 2026 08:32 „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ „Ég held að tala látinna eigi eftir að hækka,“ segir tónlistarmaðurinn landskunni, Páll Óskar Hjálmtýsson, um hörmungarnar í Venesúela. Skjálfti að stærð 7,5 reið þar yfir á miðvikudag í liðinni viku og er tala látinna komin upp í 2295 samkvæmt yfirvöldum. Eiginmaður Páls Óskars, Antonio, er venesúelskur. 2. júlí 2026 11:56 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Sjá meira
Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag. 27. júní 2026 08:32
„Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ „Ég held að tala látinna eigi eftir að hækka,“ segir tónlistarmaðurinn landskunni, Páll Óskar Hjálmtýsson, um hörmungarnar í Venesúela. Skjálfti að stærð 7,5 reið þar yfir á miðvikudag í liðinni viku og er tala látinna komin upp í 2295 samkvæmt yfirvöldum. Eiginmaður Páls Óskars, Antonio, er venesúelskur. 2. júlí 2026 11:56