Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. júlí 2026 07:37 Ortega er sagður hafa gengið markvisst fram í því að loka fjölmiðlum, háskólum og stofnunum. Getty/Jesus Vargas Daniel Ortega, forseti Níkaragva, segir engar kosningar verða haldnar í landinu héðan í frá. Ástæðan sé einföld; hann vilji koma í veg fyrir að stjórnarandstaðan komist til valda.
Hinn 80 ára einræðisherra hefur verið við völd frá árinu 2007. Hann hefur unnið að því að grafa undan lýðræðinu og stóð meðal annars fyrir stjórnarskrárbreytingum í fyrra þar sem kjörtímabil forseta var lengt. Þá fólu breytingarnar í sér að eiginkona Ortega, Rosario Murillo, var gerð að „með-forseta“. Hún var áður varaforseti landsins. Stjórnvöld héldu upp á 47 ára afmæli byltingar Sandínista um helgina en Ortega tók þátt í byltingunni, fór fyrir endurreisninni á árunum 1979 til 1985 og var áður forseti frá 1985 til 1990. Forsetinn sagði við það tilefni að engar kosningar yrðu haldnar framvegis og að hann myndi vinna að því með þinginu að setja lög til að „reisa vegg“ gegn stjórnarandstöðunni. Sakaði hann stjórnarandstöðuna um að vilja steypa sér af stóli og kallaði stjórnarandstæðinga föðurlandssvikara. Boða átti til kosninga í landinu á næsta ári en algjör óvissa er nú uppi um framhaldið. Þegar kosningar fóru síðast fram árið 2021 bönnuðu stjórnvöld stjórnmálaflokka og handtóku alla sem þóttu líklegir til að skora forsetann á hólm. Sérfræðingar segja Ortega og Murillo óttast að fjarað hafi undan stuðningi við þau og að kosningar gætu orðið til þess að óánægja landsmanna brjótist út. Guardian fjallar ítarlega um málið.
Níkaragva Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira