Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Árni Sæberg skrifar 30. október 2026 13:42 Höskuldur Þór Þórhallsson og Magnús Traustason. Til að freista þess að fá niðurstöðu Úrskurðarnefndar lögmanna hnekkt þurfti Höskuldur að fara í mál við Magnús. Vísir Lögmaðurinn og fyrrverandi þingmaðurinn Höskuldur Þór Þórhallsson þarf að sætta sig við að sitja uppi með áminningu sem Úrskurðarnefnd lögmanna veitti honum vegna ágreinings um skipti dánarbús. Landsréttur kvað upp dóm þess efnis í gær en Höskuldur hefur þegar sagt að hann muni fara með málið alla leið í Hæstarétt þurfi hann þess.
Vísir fjallaði á sínum tíma ítarlega um áminningu Höskuldar en hann var skipaður skiptastjóri í opinberum skiptum á dánarbúi konu í júlí árið 2020. Landsréttur staðfesti í gær niðurstöðu Héraðsdóms Suðurlands í máli Höskuldar á hendur Magnúsi Traustasyni, einum erfingja konunnar. Höskuldur stefndi Magnúsi til þess að fá áminningu úrskurðarnefndarinnar hnekkt, líkt og lög gera ráð fyrir. Niðurstaða héraðsdóms er reifuð í fréttinni hér að neðan: Í dómi Landsréttar segir að niðurstaða nefndarinnar á því að Höskuldur hefði brotið gegn lögum um lögmenn með því að hafa ekki staðið skil á erfðafjárskatti fyrr en tæplega ári eftir samþykki endanlegrar úthlutunargerðar dánarbús móður Magnúsar. Krafa Höskuldar um ógildingu úrskurðarins hafi annars vegar byggst á því að nefndin hefði átt að vísa málinu frá og hins vegar að hann hafi verið efnislega rangur. Vegna þess fyrrnefnda taldi Landsréttur að nefndin hefði verið bær til að taka kvörtun hans til meðferðar þar sem ótvírætt hefði verið að Magnús hefði lögvarða hagsmuni af því að bera kvörtunina fram þar sem hún varðaði meðal annars ætlaða vanrækslu Höskuldar á skilum skattsins sem Magnús og aðrir erfingjar báru persónulega ábyrgð á. Þá taldi Landsréttur að nefndin hefði haft lögbundna heimild til að áminna Höskuld fyrir ranga upplýsingagjöf þar sem hinar röngu upplýsingar vörðuð beinlínis þá kvörtun sem nefndin hafði til meðferðar og voru þess eðlis að geta haft áhrif á niðurstöðu hennar. Varðandi athugasemdir Höskuldar sem lutu að því að nefndin hefði ekki gefið honum kost á að tjá sig um fyrirhugaða áminningu á grundvelli hinnar röngu upplýsingagjafar tók Landsréttur fram að gögn málsins hefðu borið með sér að hann hefði ekki veitt nefndinni réttar upplýsingar um greiðslutíma skattsins og því fyrirsjáanlegt að andmæli hans hefðu haft enga eða mjög takmarkaða þýðingu. Þá var ekki fallist á með Höskuldi að tiltekið ákvæði laga um erfðafjárskatt hefði þýðingu í málinu. Hinn áfrýjaði dómur var því staðfestur um sýknu Magnúsar af öllum kröfum Höskuldar. Höskuldi var gert að greiða Magnúsi 1,2 milljónir króna í málskostnað fyrir Landsrétti.
Lögmennska Dómsmál Tengdar fréttir „Ég er rasandi hissa á þessu“ Magnús Traustason er afar hissa á því að þurfa að grípa til varna í sérdeilis sérkennilegu máli. Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður segir að svona séu lögin. 14. mars 2025 08:02 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Sjá meira
„Ég er rasandi hissa á þessu“ Magnús Traustason er afar hissa á því að þurfa að grípa til varna í sérdeilis sérkennilegu máli. Höskuldur Þór Þórhallsson lögmaður segir að svona séu lögin. 14. mars 2025 08:02