„Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Andri Broddason skrifar 21. júlí 2026 19:33 Jon Rahm segist vita um stöðu LIV-mótaraðarinnar en má ekkert segja frá. Getty/Michael Reaves Jon Rahm ætlar ekkert að gefa upp hvort hann muni halda áfram á LIV-mótaröðinni í golfi. Miklar efasemdir ríkja um hvort mótaröðin geti haldið áfram eftir að fjárfestar frá Sádí Arabíu drógu fjármagn sitt til baka úr mótaröðinni eftir tímabilið.
Mikil ringulreið var innan golfheimsins þegar LIV-mótaröðin leit dagsins ljóst og voru margir kylfingar sem fóru úr PGA-mótaröðinni og Evrópumótaröðinni yfir til LIV fyrir miklar fjárhæðir. Gengi LIV hefur ekki verið jafn gott og fjárfestar voru að vonast eftir og mun stærsti hluti fjárfestinganna fara eftir tímabilið. Jon Rahm er eitt stærsta nafnið á LIV-mótaröðinni en hann er mættur til keppni í Bretlandi eftir vonbrigðarframmistöðu á Opna breska risamótinu sem var síðustu helgi. Rahm endaði í 46. sæti mótsins og fékk áminningu frá dómurum mótsins eftir að hann kastaði kylfunni sinni á öðrum hring mótsins. Á blaðamannafundi fyrir LIV-mót helgarinnar í Bretlandi var Rahm spurður út í framtíð sína og LIV. „Ég veit hvað er í gangi bak við tjöldin en það er ekkert sem ég get deilt. Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja.“ Rahm segist oft vera misskilinn kylfingur þar sem hann er oft pirraður inni á vellinum. Hann segist þó ekki vera þannig utan vallar enda erfitt að kvarta þegar vinnan hans er að spila golf. Óvíst er hvort LIV-mótaröðin leggi upp laupana eða hvort aðrir fjárfestar taki við mótaröðinni um lok tímabils. Ef LIV-mótaröðin hættir verður fróðlegt að sjá hvað verður um stærstu stjörnur mótaraðarinnar eins og Jon Rahm og Bryson DeChambeau en PGA-mótaröðin hefur verið treg að bjóða LIV-leikmönnum til baka
LIV-mótaröðin Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira