Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar 27. júlí 2026 16:31 Í lok ágúst verður þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem kosið verður um hvort hefja skuli á ný viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu (ESB). Fyrri viðræður um aðild Íslands að ESB hófust árið 2009 en voru síðan settar á ís af þáverandi ríkistjórn án þess að leita samþykkis Alþingis fyrir þeirri ákvörðun. Bakgrunnur mögulegra áframhaldandi viðræðna við ESB um aðild er um margt einstakur bæði frá sjónarhóli Íslands og ESB. Þetta er í fyrsta skipti sem ríki, sem er að undirbúa aðild að ESB, lætur fólkið í landinu ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu hvort fara skuli í viðræður um aðild. Hér er því um ákveðið framfaraskref í lýðræðisátt sem ber að fagna. Þetta er einnig í fyrsta skipti sem ríki, sem er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu (EES), setur aðild að ESB á dagskrá með formlegum hætti. Eins og kunnugt er gerðist Ísland aðili að EES með Noregi og Liechtenstein árið 1994. Önnur aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA), Austurríki, Finnland og Svíþjóð, sem hófu viðræður um aðild að EES völdu hins vegar þann kost að ganga í ESB og verður ekki annað séð en að almenn sátt ríki um þá ákvörðun í þessum löndum. Í gegnum EES samninginn hefur Ísland undirgengist löggjöf ESB og tekið þátt í samstarfsverkefnum ESB á margvíslegum sviðum og hefur þetta samstarf haft margvíslegan ávinning í för með sér fyrir íslensk fyrirtæki og almenning. M.a. með hliðsjón af reynslu okkar Íslendinga af EES og reynslu nágrannaríkja okkar af ESB aðild finnst mér engin goðgá að skoða hvort aðild að ESB geti fært okkur Íslendingum enn meiri ávinning en EES samningurinn. Upphaflega var ESB stofnað sem samstarfsvettvangur nokkurra ríkja í Evrópu til að fást við mikilvæg samfélagsleg viðfangsefni sem einstök ríki réðu betur við í alþjóðlegu samstarfi heldur en ein sér. Þrátt fyrir mikla fjölgun aðildarríkja ESB, sem nú eru 27 talsins, hefur þessi tilgangur haldist óbreyttur. Almenningur í aðildarríkjum ESB er almennt ánægður með aðild viðkomandi landa að sambandinu. Aðeins tvö ríki, Grænland og Bretland, hafa sagt sig úr ESB. Úrsögn Bretlands hefur haft afar neikvæðar afleiðingar fyrir breskt samfélag en Grænland hefur skjól af aðild Danmerkur að ESB. Ég vona að meirihluti landsmanna segi já við því að hefja aðildarviðræður við ESB í væntanlegri þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðeins þannig gefst tækifæri til þess að skoða hvort aðild að ESB færi Íslandi ávinning umfram það sem nú fæst með EES. Ef tekst að ganga frá aðildarsamningi við ESB verður sá samningur borinn undir þjóðaratkvæði. Þá mun ég taka afstöðu til þess hver áhrif aðildar að ESB á íslenskt samfélag gætu orðið umfram það sem EES samningurinn færir okkur nú þegar. Þar vil ég bæði líta til ávinnings fyrir fólk og fyrirtæki hér á landi en einnig hvert framlag okkar Íslendinga gæti orðið til samstarfs á vegum ESB. Í þessu sambandi nefni ég nokkur dæmi um mikilvæga málaflokka. Loftslagsmál, þar á ég við samhæfð viðbrögð til að draga úr hamfarahlýnun og aðgerðir til að aðlagast henni. Samgöngumál. Íslenskt vegakerfi er vanþróað í samanburði við það sem gerist í aðildarríkjum ESB. Skoða þarf hvort og hvernig ESB getur komið að uppbyggingu nútíma vegakerfis hér á landi. Byggðamál. Ísland er borgríki þar sem flestar ákvarðanir eru teknar af stjórnmálamönnum og embættismönnum í höfuðborginni oft án tillits til hagsmuna fyrirtækja og fólks sem býr á landsbyggðinni. ESB hefur reynslu af stefnumótun í byggðamálum þar sem hagsmunir valdamanna í höfuðborgum viðkomandi ríkja þurfa ekki endilega að ráða. Landbúnaðarmál. Staða bænda fer versnandi hér á landi. Í samningum við ESB þarf að tryggja að staða bænda hér á landi batni, einkum með það fyrir augum að tryggja matvælaöryggi í landinu á viðsjárverðum tímum í alþjóðamálum. Fjármál heimila og fyrirtækja. Mögulegur samningur við ESB þarf að fela í sér fyrirheit um meiri fyrirsjáanleika í fjármálum fyrirtækja og heimila og hagstæðari vaxtakjör á lánum. Þau svið þar sem ég tel að við Íslendingar höfum margt fram að færa til ESB eru t.d. Sjávarútvegur s.s. stjórnun fiskveiða, nýsköpun og arðsemi í sjávarútvegi. Orkumál, t.d. nýting á endurnýjanlegri orku, jarðhita og vatnsafli. Þekking og reynsla Íslendinga á sviði jarðhita er eftirsótt um allan heim. Þekking á norðurslóðum. Á síðustu árum hefur byggst upp hér á landi mikilvæg og dýrmæt þekking á norðurslóðum sem er fyrir marga hluta sakir eftirsóknarverð fyrir ESB sem heild og aðildarríki þess. Verði af aðildarsamningi við ESB mun ég taka afstöðu til hans m.a. með tilliti til sjónarmiða sem reifuð hafa verið hér að framan. Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafa spunnist ákafar umræður á Alþingi og fjölmiðlum um efni og tilurð atkvæðagreiðslunnar. Í umræðum þeirra sem vilja segja nei er sumt málefnalegt og gagnlegt annað er ómálefnalegt og gagnslítið. En í umræðunum koma þó fram ýmsir punktar sem læra má af og hafa mætti til hliðsjónar ef til aðildarviðræðna kæmi. Skeleggir talsmenn bænda hafa skiljanlega áhyggjur af stöðu íslensks landbúnaðar innan ESB og er sjálfsagt að taka tillit til þeirra sjónarmiða. Hreinn Loftsson, lögmaður, hefur skrifað greinar um aðdraganda og bakgrunn væntanlegra samningaviðræða sem eru vandaðar og málefnalegar þó svo að ég sé ekki sammála niðurstöðum hans. Af málflutningi þessara aðila má hins vegar draga margs konar lærdóma. Lakari er hins vegar málflutningur sumra stjórnmálamanna og auðmanna hér á landi, sem hafa bundist samtökum, sem hvetja almenning til að segja nei og mála ástandið í aðildarríkjum ESB dekkri litum en nokkur ástæða er til. Áberandi er í þeim hræðsluáróðri hvað hann endurómar mennningarstríð MAGA hreyfingar Trump, forseta Bandaríkjanna, gegn lýðræðisríkjum Evrópu. Það er ekki gagnleg fyrirmynd til að viðhalda uppbyggilegri umræðu hér á landi. Sá kostulegi áróður minnir einna helst á textann í háðskvæði Bjartmars Guðlaugssonar, Sumarliði er fullur, sem gerir „allt miklu betur en fúll á móti.“ Ástæða er til að hvetja mestu orðhákana til að halda ró sinni. Ísland hefur tvo góða kosti til að velja um. Annars vegar að skoða aðild að ESB með þeim kostum og göllum sem henni gætu fylgt. Ef mönnum líst ekki á skilmála í mögulegum aðildarsamningi við ESB er um að gera að geyma neiið þangað til sá samningur verður borinn undir atkvæði. Ef aðildarsamningur verður felldur þá heldur farsælt samstarf okkar við ESB vonandi áfram á grundvelli EES samningsins. En til þess að geta skoðað þessa kosti þá mun ég segja já þann 29. ágúst og hvet aðra til að gera það sama. Höfundur var rektor Háskólans á Akureyri frá 1994-2009. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar