Erlent

Þrettán látnir hið minnsta í Japan

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Björgunarsveitarmaður að störfum í verslunarmiðstöðinni í Kumomoto þar sem mikil sprenging varð eftir skjálftann.
Björgunarsveitarmaður að störfum í verslunarmiðstöðinni í Kumomoto þar sem mikil sprenging varð eftir skjálftann. AP Photo/Hiro Komae

Tala látinna eftir jarðskjálftann í Japan í gær stendur nú í þrettán en enn er leitað að fólki í verslunarmiðstöð þar sem mikil sprenging varð skömmu eftir hamfarirnar.

Skjálftinn mældist 7,1 stig og skemmdust hús víða, sérstaklega í borginni Kumamoto á eyjunni Kyushu. Um 450 fjöldahjálparstöðvar hafa verið opnaðar og sinna tæplega 5000 manns björgunarstörfum á skjálftasvæðinu að sögn forsætisráðherra landsins, Sanae Takaichi sem segir björgunarliðið nú í kappi við tímann.

Einnig er leitað í rústum pappírsverksmiðju á svæðinu þar sem óttast er að fólk hafi orðið undir rústum byggingarinnar. Til að bæta gráu ofan á svart gengur nú hitabylgja yfir svæðið og er búist við að hitinn fari í 35 stig þar næstu daga.


Tengdar fréttir

Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan

Um fjörutíu fóru slasaðir á sjúkrahús í Yatsushiro-borg í Japan eftir að jarðskjálfti að stærð 7,1 skók Kumamoto-hérað í morgun. Lest fór út af sporinu og valt á hliðina á lestarstöð í sömu borg og skemmdust steinveggir í Kumamoto-kastala.

Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan

Öflugur jarðskjálfti skók Kumamoto á japönsku eyjunni Kyushu í morgun og var hann 7,1 að stærð samkvæmt bráðabirgðamælingum. Japanska veðurstofan gaf út flóðbylgjuviðvörun vegna þessa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×