Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Árni Sæberg skrifar 4. ágúst 2026 14:36 Verslunin er á Store Regnegade í Kaupmannahöfn. 66°Norður Ný verslun 66°Norður var opnuð í dag á Store Regnegade í Kaupmannahöfn, þar sem verslunin Storm var áður til húsa.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Storm þekki margir Íslendingar en hún hafi skapað sér sess sem ein helsta tísku- og lífstílsverslun Kaupmannahafnar síðustu áratugi. Verslunin sé alls 160 fm að stærð og á tveimur hæðum. „Þegar Rasmus Storm, eigandi Storm, ákvað að láta staðar numið með verslunina eftir 32 ár í rekstri vildi hann finna réttan aðila sem gæti haldið uppi merkjum þessa skemmtilega verslunarhúsnæðis. Samtal hófst á milli okkar og úr varð að 66°Norður tók við húsnæðinu en það varð líka til gott vinasamband á milli okkar og unnin var lítil samstarfslína sem seld verður í versluninni sem Rasmus hannaði á Íslandi með hönnunarteyminu okkar,“ er haft eftir Helga Rúnari Óskarssyni, forstjóra 66°Norður. Verslunin sæki innblástur til Íslands en þar megi til dæmis finna vegg úr hraunhellum, íslenskt berg og mátunarklefarnir á neðri hæðinni séu bein skírskotun í jökla og jöklahella. Verslunarrýmið sé málað með málningu frá íslenska fyrirtækinu Dýpi, sem vinni málningu úr kalkþörungum úr Arnarfirði á Vestfjörðum. Innan úr versluninni nýju.66°Norður Versluninni hafi verið fagnað með ýmsum hætti í dag en dagurinn hafi byrjað á hlaupi frá versluninni í samstarfi við hlaupamerkið Hoka. Fjölmiðlum hafi svo verið boðið í opið hús og morgunmat og loks verði götupartý fram á kvöld. Nýja verslunin í Store Regnegade sé þriðja verslun 66°Norður í Kaupmannahöfn en íslenska útivistarmerkið sé fyrir með verslanir í Fredriksberg og á Kastrup-flugvelli.
Tíska og hönnun Danmörk Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira