Lífið

Sonur Mari og Njarðar fæddur

Lovísa Arnardóttir skrifar
Njörður og Mari hafa verið saman í um fjögur ár.
Njörður og Mari hafa verið saman í um fjögur ár. Instagram

Ofurhlauparinn Mari Järsk fæddi son sinn og Njarðar Lúðvíkssonar í gær. Mari birti mynd á samfélagsmiðli sínum seint í gær um að drengurinn væri „mættastur“.

Mari hafði verið uppi á spítala í nokkra stund og hafði, að vanda, leyft fylgjendum sínum að fylgjast náið með ferlinu. 

Mari hafði orð á því að fæðingarferlið væri dálítið eins og „bakgarðshlaup“ í einni færslunni.

Parið greindi frá því í janúarlok að þau ættu von á barni og greindi frá því að von væri á dreng í febrúar. Mari og Njörður hafa fjallað opinskátt um tilraunir sínar til að eignast barn síðastliðin ár. Í desember 2024 ræddi blaðamaður Vísis við hlaupakonuna þar sem hún var nýkomin úr eggheimtu vegna óútskýrðrar ófrjósemi.

Sjá einnig: Mari sló met í eggheimtu

Mari og Njörður kynntust árið 2022 þegar Mari fór í hreyfingarferð til Tenerife og hann í golfferð. Til stóð að koma honum saman með annarri stelpu en þá hafði kviknað neisti á milli hans og Mari. Þegar heim til Íslands var komið bauð Njörður henni á stefnumót og þá var ekki aftur snúið.


Tengdar fréttir

Stjörnulífið: Heiðdís Rós komin heim

Veðurblíðan um Verslunarmannahelgina var sannarlega áberandi á samfélagsmiðlum og stjörnur landsins ferðuðust landshorna á milli fyrir stærstu djammhelgi ársins. Minna var um ferðalög erlendis en förðunarfræðingurinn Heiðdís Rós er meira að segja komin til Íslands eftir fjölda ára fjarveru.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.