„Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. ágúst 2026 12:00 Fyrsti dagur Íslandsmótsins í golfi fór fram í mikilli rigningu. gsí Nánast stanslaust rigndi fyrsta keppnisdaginn á Íslandsmótinu í golfi og víða voru pollar á Korpúlfsstaðavellinum. Vallarstjóri segir völlinn vera að taka betur við sér í dag, á öðrum degi mótsins. Veðurhorfur eru fínar fyrir helgina. „
Þegar við mættum í gærmorgun leist okkur nú ekki á blikuna,“ sagði Hólmar Freyr Christiansson vallarstjóri Korpu í samtali við Vísi. Hann útskýrði að mikill þurrkur síðustu daga fyrir mót hafi gert það að verkum, þegar byrjaði að hellirigna í gær, að grasið hefði tekið illa við vatninu. Grasið hefði verið orðið svo þurrt og herpt að pollar hefðu myndast ofan á því. Hólmar Freyr Christiansson, vallarstjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, á góðviðrisdegi. GR „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt. En ég hafði ís í maganum og talaði við mótsstjórn, sagði þeim að þetta myndi sennilega lagast þegar líða færi á daginn og sem betur fer stóðst það. Völlurinn er skárri núna, hann tekur betur við vatninu og það eru færri pollar í dag en í gær. Þetta fer allt í rétta átt.“ Lengdarmæling í hellidembu.gsí Þolinmæði og smá vatnsblástur Hólmar segir þolinmæðina að mestu leiti hafa leyst þessa þraut en sums staðar þurfti að grípa til aðgerða. Vellinum var líka aðeins breytt fyrir daginn í dag, teigar sem höfðu verið lengdir voru styttir aftur til að flýta leiknum sem gengur hægar í rigningu. „Á einhverjum stöðum höfum við þurft að blása vatninu burt eða ýta því… Á einhverjum stöðum höfum við þurft að færa teiga framar í dag, einfaldlega því leiktíminn er svo lítill. Við gerðum það bara til að hraða leiknum aðeins, breyttum aðeins uppsetningu vallarins.“ Kylfingur GKG á fyrsta degi Íslandsmótsins. gsí Fín veðurspá fyrir helgina Eftir erfiða byrjun á Íslandsmótinu hefur völlurinn tekið vel við sér og veðurspáin lítur vel út fyrir helgina að sögn Hólmars. „Ef allar spár ganga eftir, og ég held að ég sé búinn að skoða allar veðurspár sem heimurinn býður upp á, þá ættum við að vera í þurrki á morgun og hinn. Það er vindur með rigningunni í dag og þó það herðist aðeins á henni seinni partinn er hún ekki jafn mikil og í gær. Ég held að við séum í ágætis málum heilt yfir fyrir helgina.“
Íslandsmótið í golfi Golf Tengdar fréttir Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er með forystu eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Korpúlfsstöðum í ár en hann vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í fyrra. 6. ágúst 2026 18:05 Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er með forystuna í meistaraflokki kvenna eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli. 6. ágúst 2026 16:39 Mest lesið Kókaínnotkun næringarfræðingsins um að kenna að boxarinn féll Sport Raunveruleiki sem þú getur ekki forðast Handbolti Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Íslenski boltinn Toney ákærður fyrir líkamsárás á skemmtistað Fótbolti Þakkar FIFA fyrir greiðslu sem birtist allt í einu eftir gagnrýnina Fótbolti „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Golf Hefur 39 sinnum skipt um lið á ferlinum Fótbolti Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Enski boltinn Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ Enski boltinn Kallar eftir afsögn Infantino og skaut á Blatter Fótbolti Fleiri fréttir „Það voru pollar út um allt, þetta var vægast sagt slæmt“ Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Gæti skákað föður sínum: „Þetta verður spennandi“ Á heimavelli og freista þess að ná montrétti fjölskyldunnar Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Vann Einvígið á Nesinu annað árið í röð Tíu fyrrum Íslandsmeistarar keppa á Íslandsmótinu í golfi í ár Vann bráðabanann eftir að hafa beðið lengi í klúbbhúsinu Donald Trump tók við verðlaunum sem klúbbmeistari á sínum eigin velli Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Gunnlaugur Árni tekur þátt í Einvíginu á Nesinu Gagnrýnd fyrir að hrekkja kylfusveininn Danir og Norðmenn keppa í golfinu í anda Ryder-bikarsins Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Guðmundur Oddsson látinn „Ég ætla ekki að segja neitt sem ég má ekki segja“ Rory var „fastur í hlutlausum“ allt mótið og segist vera á leið í frí „Ég fann ekki fyrir neinu við púttið því allt skalf svo mikið“ Scheffler segir DeChambeau „klárlega ekki vera svindlara“ Fox sýndi stáltaugar og vann sitt fyrsta risamót Young flaug inn í toppbaráttuna og Scheffler skammt undan Aron og Guðrún með forystu fyrir lokahringinn McIlroy pirraður á athyglissjúkum DeChambeau Burns leiðir á Birkdale og líkur á sögulegum sigri Sá þriðji sem jafnar vallarmetið Púttin að leika Scheffler grátt DeChambeau refsað eftir hringinn og dettur niður í fimmta sæti DeChambeau einu höggi frá toppsætinu eftir fugla á lokaholunum Íslendingar í stórum hlutverkum á The Open Sjá meira
Íslandsmeistarinn byrjar best allra á Íslandsmótinu í golfi Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er með forystu eftir fyrsta daginn á Íslandsmótinu í golfi sem fer fram á Korpúlfsstöðum í ár en hann vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn í fyrra. 6. ágúst 2026 18:05
Elsa Maren með sex fugla á síðustu sjö holunum Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er með forystuna í meistaraflokki kvenna eftir fyrsta dag á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli. 6. ágúst 2026 16:39