Golf

Gífur­leg spenna á Ís­lands­mótinu í golfi

Aron Guðmundsson skrifar
Guðrún Brá er með forystuna á Íslandsmótinu en hefur verið að finna fyrir pressunni frá öðrum kylfingum
Guðrún Brá er með forystuna á Íslandsmótinu en hefur verið að finna fyrir pressunni frá öðrum kylfingum Mynd/GSÍ

Aðeins einu höggi munar á ríkjandi Íslandsmeistaranum Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og Ragnhildi Kristinsdóttur þegar báðar hafa lokið fyrri níu á lokahring Íslandsmótsins í golfi. Þá er Elsa Maren Steinarsdóttir skammt undan.

Spilað er á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík og hefur Guðrún Brá, fjórfaldur Íslandsmeistari, verið í forystunni síðan á öðrum hring mótsins. Hún kom inn í lokadaginn með þriggja högga forskot sem að stendur nú í að eins einu höggi. 

Ragnhildur Kristinsdóttir, úr Golfklúbbi Reykjavíkur, var fjórum höggum á eftir Guðrúnu fyrir lokahringinn en hefur verið að spila fantavel á fyrri níu holum vallarins í dag. 

Guðrún Brá fékk tvo skolla á fyrri níu en líka einn örn sem sér til þess að hún er nú á einu höggi undir pari á heildina litið. Ragnhildur setti á sama tíma niður þrjá fugla og er á pari. Einu höggi á eftir Guðrúnu Brá. 

Þá er Elsa Maren á einu höggi yfir pari og er því sem stendur þriggja kylfinga einvígi um Íslandsmeistaratitilinn.

Þá er Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur með fjögurra högga forystu á tíu höggum undir pari þegar sex holur eru búnar á lokahringnum hjá síðasta teighóp. Aron Emil er í öðru sæti og hefur unnið upp tvö högg af sex högga forystunni sem Dagbjartur var með fyrir lokahringinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×