Viðskipti innlent

Kaup­endur yfir­leitt með raun­hæft mat og vel undir­búnir

Lovísa Arnardóttir skrifar
Monika segist bjartsýn fyrir komandi mánuðum og stöðu á fasteignamarkaði.
Monika segist bjartsýn fyrir komandi mánuðum og stöðu á fasteignamarkaði. Vísir/Lýður Valberg

Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala, segir sumartímann yfirleitt rólegan í fasteignaviðskiptum en það hafi gengið vel í sumar. Hún er bjartsýn fyrir komandi mánuðum þrátt fyrir mögulega riftingu á kjarasamningum og kosningu um Evrópusambandið. Fólk hafi trú á fasteignamarkaðnum og þurfi á honum að halda.

Monika var til viðtals um stöðu fasteignamarkaðarins í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir að í júlí hafi verið gerðir 850 kaupsamningar og til samanburðar hafi þeir verið 740 í maí. Það hafi því verið meira í júní og júlí.

Monika segir sumarmánuði áður hafa verið rólega en eftir Covid hafi sumarmánuðir oft verið fínir. Hún segir birgðatíma um sjö mánuði samkvæmt mælingum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þessi tími hafi verið að lengjast. Fjölgun íbúða á skrá og þær eru lengri á skrá.

„Þessar keðjur hafa verið erfiðar síðustu misseri,“ segir Monika.

Hún segir það stundum einföldun að segja að íbúðir séu verðlagðar of hátt. Ef markaður er virkur og íbúðir seljast vel og einhverjar standa eftir þá sé það líklega verðið en það sé ekki alltaf samt ekki svo einfalt.

Hvað varðar keðjurnar segir Monika fólk ekki endilega ekki komast í gegnum greiðslumat, fólk sé yfirleitt vel undirbúið og telji sig yfirleitt ekki geta gert eitthvað sem það getur ekki.

„Það sem er að gerast með þessar keðjur er að þær eignir sem fara inn í keðjurnar seljast ekki og á einhverjum tímapunkti ákveður fólk að hætta,“ segir hún og að það sé búið að gefa fresti kannski í nokkra mánuði og fólk hætti á endanum við.

„Það þarf rosa margt að ganga upp.“

Hún segir stóru eignirnar yfirleitt koma inn fyrst, einbýlishús og sá sem kaupi það komi kannski úr raðhúsi og sá sem kaupir það kemur úr fjögurra herbergja og svo koll af kolli. Það sem flækir málið er að þau sem ætla að kaupa tveggja herbergja íbúðina er eldra par sem þarf að selja einbýlishús.

„Þá er það orðið erfitt og yfirleitt ekki tekið inn.“

Um stöðu ungs fólks segir Monika að þau sjái að ungt fólk fái margt aðstoð frá foreldrum. Tölur HMs sýni að það sé í sjálfu sér ekki erfiðara fyrir ungt fólk á Íslandi að komast inn á markaðinn en í samanburðarlöndum og að aldurshópurinn hafi farið lækkandi.

Hún segir unga manneskju þurfa að sýna mikið aðhald til að kaupa fasteign og það hafi alltaf verið þannig. Það séu leiðir og hlutdeildarlánin séu til dæmis góð leið þó að þau séu af skornum skammti.

Góð virkni og er bjartsýn

Spurð um stöðuna næstu mánuði segir Monika erfitt að spá. Það hafi verið erfitt síðustu mánuði en samt hafi verið góð virkni á fasteignamarkaði og mögulega betri en hefði mátt búast við.

„Ég hef það á tilfinningunni að það muni bara halda áfram,“ segir hún og að fólk þurfi alltaf að eiga í fasteignaviðskiptum. Fólk hafi trú á markaðnum og hann hafi verið nokkuð stöðugur síðustu mánuði. Það hafi verið lítil lækkun og fasteignamarkaðurinn þannig staðið þetta vel af sér.

„Ég er bara bjartsýn og vona að þetta fari að verða betra,“ segir hún.


Tengdar fréttir

Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði

HMS hefur birt vísitölu íbúðaverðs fyrir júní. Vísitalan hækkaði um 0,09% á milli mánaða eftir að hafa lækkað um 0,44% á milli mánaða í maí og staðið í stað í apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×