Umbúðirnar gallaðar og hakkið fer aftur í bakka Lovísa Arnardóttir skrifar 11. ágúst 2026 13:43 Guðrún segir að þó svo að Krónan vilji minnka plastnotkun verði umbúðir að uppfylla ákveðna staðla um gæði. Samsett Nýjar umbúðir um ungnautahakk í Krónunni voru gallaðar og láku. Hakkið hefur aftur verið sett í eldri umbúðir. Framkvæmdastjóri segir miður að um slíkan galla hafi verið að ræða. Viðskiptavinir njóti enn lægra vöruverðs á meðan unnið er að því að laga umbúðir.
Tilkynnt var í gær á Facebook-síðu verslunarinnar að ungnautahakk væri nú komið í nýjar umbúðir. Með þeim notaði verslunin 60 prósent minna plast í umbúðir sínar og þannig sjái Krónan fram á að spara um átta tonn af plasti á ári. Samhliða umbúðabreytingunni var tilkynnt að verð myndi lækka á ungnautahakki sem átti að selja í 400 og 700 gramma pakkningum í stað þeirra 500 sem hafa hingað til verið í boði. Guðrún Aðalsteinsdóttir framkvæmdastjóri Krónunnar segir að um galla í umbúðunum sé að ræða og meðan fundið sé út úr því verði hakkið aftur sett í umbúðirnar sem voru áður í notkun, plastaður bakki. Guðrún segir þetta afar miður. „Okkur þykir þetta afar leitt og biðjum viðskiptavini afsökunar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið,” segir Guðrún. Vilja minnka plastið Hún segir Krónuna stöðugt leita leiða til að draga úr óþarfa plastnotkun og nýju hakkumbúðirnar séu liður í þeirri vegferð. „Fyrirmyndin kemur meðal annars frá Norðurlöndunum, þar á meðal Danmörku, þar sem sambærilegar umbúðalausnir hafa verið notaðar með góðum árangri. Með breytingunni gátum við jafnframt boðið hentugra magn og lægra kílóverð,“ segir Guðrún. Eftir að breytingin var gerð hafi komið upp tilvik þar sem saumurinn á umbúðunum hafi ekki haldið sem skyldi og leki því átt sér stað. „Það er að sjálfsögðu ekki ásættanlegt og umbúðirnar uppfylla ekki þá gæðastaðla sem við gerum kröfu um. Á meðan við vinnum með framleiðanda að lausn höfum við ákveðið að færa okkur tímabundið aftur yfir í þær umbúðir sem við notuðum áður. Hakk verður því áfram í boði hjá okkur eins og áður og kílóverðið helst óbreytt, það er viðskiptavinir njóta áfram þeirrar verðlækkunar sem fylgdi breytingunni. Markmiðið er að geta farið aftur í nýju umbúðirnar þegar búið er að leysa vandann og við erum fullviss um að þær standist okkar kröfur,“ segir Guðrún. Færslan sem sett var inn í Matartips í gær. Facebook Engin E. Coli hætta Eftir að tilkynnt var um breytinguna og varan sett í sölu skapaðist töluverð umræða um hana í hópnum Matartips þar sem birt var mynd af hakkinu í kæli og rauðleitum vökva. Við myndina var skrifað: „Nammmm ecoli“. Við myndina sköpuðust umræður og meðal annars um að þessi vökvi geti þannig smitast á aðra vöru. Annar bendir á að í Danmörku sé hakkið í sams konar pokum en þeir leki ekki. Guðrún bendir jafnframt á að ekkert bendi til þess að um hættu á E. coli sé að ræða. „Gallinn snýr að umbúðunum, ekki vörunni sjálfri. Við brugðumst strax við þegar við urðum vör við vandann, færðum okkur aftur í fyrri umbúðir og höfum farið vandlega yfir með verslunum til að tryggja að hreinlæti og meðhöndlun sé til fyrirmyndar,“ segir hún. Hún segir Krónuna vilja prófa áfram nýjar og umhverfisvænni lausnir en þær þurfi að sjálfsögðu að standast þær kröfur sem við og viðskiptavinir okkar gerum. „Við vonumst til að geta leyst þetta hratt og vel,“ segir hún að lokum.
Matvöruverslun Verslun Matvælaframleiðsla Mest lesið Fella niður 26 flugferðir Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Erlent „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Innlent Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Innlent Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Innlent Þetta er í samkomulaginu um Grænland Erlent Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni Innlent Fleiri fréttir Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Hagsmunir Íslands að efla Sameinuðu þjóðirnar Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum „Skólinn okkar er alltof lítill“ Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Sjá meira