Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. ágúst 2026 11:47 Sérfræðingar Íslandsbanka segja raunar líklegra að peningastefnunefndin velti fyrir sér að hækka vextina enn frekar en að til greina komi að halda vöxtum óbreyttum. Vísir/Vilhelm Íslandsbanki spáir því að peningastefnunefnd muni hækka stýrivexti um 0,25 prósent þann 19. ágúst næstkomandi. Þrálát verðbólga og háar verðbólguvæntingar muni trúlega vega þyngra en kólnun í hagkerfinu.
Sérfræðingar bankans segja stýrivextina líklega munu haldast óbreytta eftir það fram undir næsta vor, þegar þeir muni byrja að lækka. Gangi spá Íslandsbanka eftir verði vextir á sjö daga bundnum innlánum átta prósent. „Þrálát verðbólga, of háar verðbólguvæntingar og aukin óvissa um launaþróun á næstu misserum vegna endurskoðunarákvæðis í kjarasamningum munu þar vega þyngra en skýr merki um kólnandi vinnumarkað, betra jafnvægi á íbúðamarkaði og vaxandi slaka í hagkerfinu. Þar skiptir líka máli að miðlun þessara þátta yfir í hjaðnandi verðbólgu og lækkandi verðbólguvæntingar virðist vera tregari en vonast var til,“ segir í tilkynningu á vef Íslandsbanka. Sérfræðingar Íslandsbanka segja raunar líklegra að peningastefnunefndin velti fyrir sér að hækka vextina enn frekar en að til greina komi að halda vöxtum óbreyttum. „Ákvörðun um óbreytta vexti nú eftir samfellda verðbólgu yfir 5% allt frá áramótum, útlit fyrir svipaða verðbólgu út þetta ár og viðvarandi háar verðbólguvæntingar væri einfaldlega ekki heppileg fyrir trúverðugleika verðbólgumarkmiðsins.“ Samkvæmt greiningu Íslandsbanka virðist hagvöxtur áfram verða hægur á árinu, enda hafi háir raunvextir, áframhaldandi aðlögun á vinnumarkaði og tímabundið bakslag í nokkrum útflutningsgreinum haldið aftur af umsvifum. Á móti vegi að staða heimila og fyrirtækja sé yfirleitt traust, kaupmáttur launa hafi almennt þokast upp á við þrátt fyrir mikla verðbólgu, einkaneysla reynst seigari en ætla mátti og vísbendingar uppi um að útflutningshorfur hafi almennt fremur skánað en versnað. „Í grunnsviðsmynd okkar er því enn gert ráð fyrir að hagkerfið sigli í gegnum komandi fjórðunga án þess að skreppa saman, þó ljóst sé að lítið megi út af bera svo hægur vöxtur snúist ekki í tímabundinn samdrátt. Slaki hefur hins vegar aukist jafnt og þétt í þjóðarbúinu. Atvinnuleysi hefur vaxið frá lægstu gildum síðustu ára, hægt hefur verulega á fólksflutningum til landsins og skortur á starfsfólki er mun minni en áður. Á húsnæðismarkaði hefur verðþróun róast, framboð aukist og áhrif hárrar vaxtabyrði orðið sýnilegri. Þessi þróun bendir til þess að innlendur verðbólguþrýstingur muni halda áfram að gefa eftir þegar líður á árið, þótt sú aðlögun hafi reynst hægari en vonir stóðu til fyrr á árinu.“
Seðlabankinn Efnahagsmál Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira