Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. ágúst 2026 07:59 Þorsteinn segir kaupmátt hafa aukist meira en vænst var. Vísir/Magnús Hlynur Þorsteinn Víglundsson, forstjóri eignarhaldsfélagsins Hornsteins og formaður Samtaka iðnaðarins, vísar því á bug að forsendur kjarasamninga séu brostnar en kallar eftir lægri álögum á fyrirtæki og einföldun regluverks til að sporna gegn samdrætti. „
Á sama tíma og hagkerfið er að kólna hratt og atvinnuleysi eykst hótar forysta verkalýðshreyfingarinnar uppsögn kjarasamninga vegna forsendubrests. Vissulega hefur verðbólga mælst meiri en væntingar stóðu til en hið sama má segja um launahækkanir og þar með kaupmátt,“ segir Þorsteinn í færslu á Facebook. Þorsteinn vísar þarna til þess að Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, og fleiri formenn verkalýðsfélaga hafa sagt ársverðbólgu munu mælast svo háa í ágúst að forsendur kjarasamninga muni bresta. Allt hafi hækkað nema laun en hvorki stjórnvöld né fyrirtækin brugðist við áköllum verkalýðshreyfingarinnar eftir aðgerðum. Þorsteinn, sem hefur áður gegnt stöðu framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, segir hins vegar að kaupmáttaraukning fyrstu þriggja ára samningstímans hafi farið fram úr væntingum. Hagvöxtur hafi hins vegar reynst mun minni og almenn staða hagkerfisins mun veikari og þannig hafi svigrúm atvinnulífsins til launahækkana reynst minna en vænst var. „Við þessar kringumstæður er erfitt að sjá hvers vegna kallað sé eftir stórfelldum aðgerðum af hálfu stjórnvalda og/eða auknum launahækkunum af hálfu atvinnulífsins til að bæta launafólki upp forsendubrest á sama tíma og kaupmáttur hefur vaxið meira en vænst var,“ segir Þorsteinn. „Við þessar kringumstæður er hins vegar brýnt að stjórnvöld grípi til markvissra aðgerða til að sporna gegn frekari samdrætti í hagkerfinu og vega á móti versnandi samkeppnisstöðu í atvinnulífinu almennt. Lægri álögur á fyrirtæki, einföldun regluverks og aukinn kraftur í innviðauppbyggingu væru skynsamleg viðbrögð við þeirri stöðu sem er í hagkerfinu núna.“
Kjaramál Efnahagsmál Vinnumarkaður Mest lesið Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Fleiri fréttir Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Sjá meira