Golf

Af­lýsa síðustu keppninni og fram­tíð mótaraðarinnar í upp­námi

Andri Broddason skrifar
Bryson DeChambeau er eitt stærsta nafn LIV-mótaraðarinnar en ekki er víst hver framtíð hennar sé.
Bryson DeChambeau er eitt stærsta nafn LIV-mótaraðarinnar en ekki er víst hver framtíð hennar sé. Kate McShane/Getty Images

Búist er við að LIV-mótaröðin hætti við lokakeppni liðakeppninnar á mótaröðinni. Ekki er víst hvað ákvörðunin þýði fyrir framtíð mótaraðarinnar.

Síðasta LIV-keppni ársins á að vera 27. ágúst – 30. ágúst en nú er ekki víst hvort að hún fari fram. Ekki er lengur hægt að kaupa miða fyrir keppnina og samkvæmt Telegraph hafa kylfingar verið látnir vita að keppnin fari ekki fram.

Næstsíðasta keppnin á mótaröðinni á að vera 20.–23. ágúst en nú virðist hún vera síðasta keppni tímabilsins. Miklar vangaveltur um hvort LIV-mótaröðin geti haldið áfram göngu sinni hafa sprottið upp eftir að sádí-arabískir fjárfestar drógu fjárfestinguna til baka. Það hefur haft áhrif á kylfinga og hafa einhverjir reynt að koma sér til baka á aðrar mótaraðir.

Einhverjar mótaraðir hafa boðið LIV-kylfingum samning um að koma til baka á hefðbundnu mótaraðirnar en þeirri færslu fylgja refsingar á borð við sektir og lægra verðlaunafé. Níu kylfingar, þar á meðal LIV-sigurvegarinn Jon Rahm, hafa samþykkt að fara aftur á DP World-mótaröðina fyrr í ár en ekki er víst hvort að sá möguleiki verði í boði fyrir aðra.

Í síðustu viku gaf LIV út yfirlýsingu þar sem var látið vita að nýir fjárfestar væru komnir fyrir næsta tímabil í staðinn fyrir þá sem væru að fara. Ekki vildi mótaröðin gefa upp hverjir fjárfestarnir væru og því eru ekki allir sannfærðir um hvort að nýju fjárfestarnir geti haldið mótaröðinni uppi.

Mikið af stórum kylfingum eru á LIV-mótaröðinni á borð við Bryson DeChambeau, Dustin Johnson og Sergio Garcia. Tveir kylfingar tóku tilboði PGA-mótaraðarinnar og fóru þangað frá LIV, það voru þeir Brooks Koepka og Patrick Reed. Óvíst er hvað verður um kylfinga LIV-mótaraðarinnar ef hún verður ekki lengur til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×