Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 22:01 Berglind Katla Hlynsdóttir stóð sig frábærlega á tveimur Evrópumótum i sumar, hjálpaði fyrst tuttuga ára liðinu að halda sér í A-deildinni og svo sextán ára liðinu að komast í úrslitaleik um sæti í A-deild sem tapaðist naumlega. Berglind var valin besti leikmaðurinn í sextán ára mótinu. FIBA Basketball Sumarið 2027 verður sögulegt fyrir íslenskan körfubolta þökk sé frábærum árangri yngri landsliða Íslands í Evrópukeppnunum í sumar. Ísland mun nefnilega eiga þrjú landslið í A-deild Evrópukeppnanna næsta sumar en hefur mest áður átt tvö A-deildarlandslið í einu ári. Landsliðin sem verða í A-deild næsta sumar eru bæði tuttugu ára landslið Íslands og svo sextán ára landslið karla sem var síðasta liðið til að tryggja sig upp í A-deild. Sextán ára stelpurnar voru líka aðeins einum sigri frá því að komast líka upp í A-deildina næsta sumar en þær töpuðu naumlega á móti gestgjöfum Grikkja í hreinum úrslitaleik um sæti í A-deildinni. Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var með 18 stig, 13 fráköst í úrslitaleik sextán ára landsliðsins á móti Króötum og var síðan valinn í úrvalslið mótsins. FIBA Basketball Íslenska tuttugu ára landslið kvenna var eina íslenska landsliðið sem tók þátt í A-deild í sumar og stelpurnar gerðu það frábærlega með því að ná þar tólfta sæti og halda sér í hópi A-þjóða. Þrettán efstu þjóðirnar héldu sæti sínu. Í aðalhlutverki í þessu tuttugu ára liði voru stelpur bæði úr sextán ára og átján ára landsliðinu sem áttu eftir að keppa á öðru Evrópumóti í sumar. Það þýðir að þær fá aftur tækifæri til að keppa í A-deildinni með tuttugu ára landsliðinu á næsta ári sem boðar gott. Íslenska tuttugu ára landslið karla vann sér sæti í A-deildinni með því að ná öðru sæti í B-deildinni en liðið fór alla leið í úrslitaleikinn þar sem liðið tapaði á móti Úkraínumönnum. Úkraína og Svíþjóð fóru upp ásamt íslensku strákunum. Strákarnir í íslenska tuttugu ára landsliðinu tryggðu Íslandi sæti í A-deildinni þegar Evrópumótið verður spilað á næsta ári.FIBA Basketball Sextán ára strákarnir tryggðu sér sæti í A-deildinni eftir risasigur á Bosníumönnum í undanúrslitaleik en urðu að sætta sig við annað sætið eftir naumt tap á móti gríðarlega sterku króatísku landsliði sem á auðvitað ekkert að koma nálægt B-deildinni ef allt væri eðlilegt. Þetta allt saman þýðir að sumarið 2027 verður sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta eins og sjá má á þessari samantekt á yngri landsliðum Íslands í hópi A-deildarþjóða. -- Íslensk unglingalandslið í A-deild -- Sumarið 2005 (1 lið) - 16 ára strákar í 14. sæti Sumarið 2006 (2 lið) - 16 ára strákar í 16. sæti - 18 ára strákar í 15. sæti Sumarið 2017 (1 lið) - 20 ára strákar í 8. sæti Sumarið 2018 (1 lið) - 20 ára strákar í 15. sæti Sumarið 2023 (1 lið) - 20 ára strákar í 12. sæti Sumarið 2024 (1 lið) - 20 ára strákar í 13. sæti Sumarið 2025 (2 lið) - 20 ára stelpur í 8. sæti - 20 ára strákar í 14. sæti Sumarið 2026 (1 lið) - 20 ára stelpur í 12. sæti Sumarið 2027 (3 lið) - 20 ára stelpur - 20 ára strákar - 16 ára strákar Landslið kvenna í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira
Ísland mun nefnilega eiga þrjú landslið í A-deild Evrópukeppnanna næsta sumar en hefur mest áður átt tvö A-deildarlandslið í einu ári. Landsliðin sem verða í A-deild næsta sumar eru bæði tuttugu ára landslið Íslands og svo sextán ára landslið karla sem var síðasta liðið til að tryggja sig upp í A-deild. Sextán ára stelpurnar voru líka aðeins einum sigri frá því að komast líka upp í A-deildina næsta sumar en þær töpuðu naumlega á móti gestgjöfum Grikkja í hreinum úrslitaleik um sæti í A-deildinni. Valsarinn Atli Freyr Haraldsson Katrínarson var með 18 stig, 13 fráköst í úrslitaleik sextán ára landsliðsins á móti Króötum og var síðan valinn í úrvalslið mótsins. FIBA Basketball Íslenska tuttugu ára landslið kvenna var eina íslenska landsliðið sem tók þátt í A-deild í sumar og stelpurnar gerðu það frábærlega með því að ná þar tólfta sæti og halda sér í hópi A-þjóða. Þrettán efstu þjóðirnar héldu sæti sínu. Í aðalhlutverki í þessu tuttugu ára liði voru stelpur bæði úr sextán ára og átján ára landsliðinu sem áttu eftir að keppa á öðru Evrópumóti í sumar. Það þýðir að þær fá aftur tækifæri til að keppa í A-deildinni með tuttugu ára landsliðinu á næsta ári sem boðar gott. Íslenska tuttugu ára landslið karla vann sér sæti í A-deildinni með því að ná öðru sæti í B-deildinni en liðið fór alla leið í úrslitaleikinn þar sem liðið tapaði á móti Úkraínumönnum. Úkraína og Svíþjóð fóru upp ásamt íslensku strákunum. Strákarnir í íslenska tuttugu ára landsliðinu tryggðu Íslandi sæti í A-deildinni þegar Evrópumótið verður spilað á næsta ári.FIBA Basketball Sextán ára strákarnir tryggðu sér sæti í A-deildinni eftir risasigur á Bosníumönnum í undanúrslitaleik en urðu að sætta sig við annað sætið eftir naumt tap á móti gríðarlega sterku króatísku landsliði sem á auðvitað ekkert að koma nálægt B-deildinni ef allt væri eðlilegt. Þetta allt saman þýðir að sumarið 2027 verður sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta eins og sjá má á þessari samantekt á yngri landsliðum Íslands í hópi A-deildarþjóða. -- Íslensk unglingalandslið í A-deild -- Sumarið 2005 (1 lið) - 16 ára strákar í 14. sæti Sumarið 2006 (2 lið) - 16 ára strákar í 16. sæti - 18 ára strákar í 15. sæti Sumarið 2017 (1 lið) - 20 ára strákar í 8. sæti Sumarið 2018 (1 lið) - 20 ára strákar í 15. sæti Sumarið 2023 (1 lið) - 20 ára strákar í 12. sæti Sumarið 2024 (1 lið) - 20 ára strákar í 13. sæti Sumarið 2025 (2 lið) - 20 ára stelpur í 8. sæti - 20 ára strákar í 14. sæti Sumarið 2026 (1 lið) - 20 ára stelpur í 12. sæti Sumarið 2027 (3 lið) - 20 ára stelpur - 20 ára strákar - 16 ára strákar
-- Íslensk unglingalandslið í A-deild -- Sumarið 2005 (1 lið) - 16 ára strákar í 14. sæti Sumarið 2006 (2 lið) - 16 ára strákar í 16. sæti - 18 ára strákar í 15. sæti Sumarið 2017 (1 lið) - 20 ára strákar í 8. sæti Sumarið 2018 (1 lið) - 20 ára strákar í 15. sæti Sumarið 2023 (1 lið) - 20 ára strákar í 12. sæti Sumarið 2024 (1 lið) - 20 ára strákar í 13. sæti Sumarið 2025 (2 lið) - 20 ára stelpur í 8. sæti - 20 ára strákar í 14. sæti Sumarið 2026 (1 lið) - 20 ára stelpur í 12. sæti Sumarið 2027 (3 lið) - 20 ára stelpur - 20 ára strákar - 16 ára strákar
Landslið kvenna í körfubolta Landslið karla í körfubolta Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Leik lokið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Sjá meira