Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Aron Guðmundsson skrifar 20. ágúst 2026 11:05 Bruno Guimaraes var fyrirliði Newcastle United á síðasta tímabili og er nú orðinn leikmaður Englandsmeistaranna. Vísir/Samsett Sérfræðingar Messunnar á Sýn Sport voru ekki sammála um það hversu góð kaup Arsenal hafi gert með því að fá Bruno Guimaraes til liðs við sig frá Newcastle United á 75 milljónir punda. Eiður Smári Guðjohnsen hefði viljað sjá Arsenal taka annan miðjumann frá Newcastle.
Upphitunarþáttur Messunnar fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni sem hefst á morgun var á dagskrá Sýn Sport í gær og er hægt að horfa á í heild sinni í meðfylgjandi frétt: Meðal þess sem var til umræðu var félagsskiptaglugginn hjá Arsenal til þessa en Englandsmeistararnir hafa þétt raðirnar með því að fá inn nokkra leikmenn og eru fleiri á leiðinni. Hinn 28 ára gamli Bruno Guimaraes, fyrrverandi fyrirliði Newcastle United og landsliðsmaður Brasilíu, var meðal annars keyptur á 75 milljónir punda en ekki voru sérfræðingar þáttarins, þeir Albert Brynjar Ingason, Hjörvar Hafliðason og Eiður Smári Guðjohnsen um það hversu góð kaup þetta væru hjá meisturunum. „Þeir taka Bruno Guimaraes á 75 milljónir punda og hann verður 29 ára í október. Það er ansi hraustlegt,“ sagði Hjörvar Hafliðason og uppskar hlátur í settinu. „Arsenal þarf bara leikmann í þessari hilu,“ svaraði Albert Brynjar sem sjálfur er stuðningsmaður Arsenal, ekki parsáttur með yfirlýsingu kollega síns í setti. „Já en ég vissi bara ekki að það væri hægt að borga svona mikið fyrir miðjumann á þessum aldri,“ bætti Hjörvar við og hófust þá snörp orðaskipti á mill hans og Alberts Brynjars. „Gerðu þið United menn ekki svipað þegar að þið keyptuð Casemiro,“ beindi Albert að Hjörvari sem er stuðningsmaður Manchester United. „Jú en hann var búinn að vinna Meistaradeildina þrisvar sinnum í röð,“ svaraði Hjörvar. Albert sagði þá Bruno vera einn besta leikmann ensku úrvalsdeildarinnar. „Myndir þú sem stuðningsmaður Manchester United ekki borga 25 milljónir punda aukalega fyrir Bruno Guimaraes heldur en Andrey Santos til dæmis?“ bætti Albert við en Manchester United fékk miðjumanninn 22 ára gamla Andrey Santos frá Chelsea og keypti hann á um 50 milljónir punda. „Það þarf ekkert að yngja þetta Arsenal lið upp. Það þarf að taka leikmenn í næstu hillu. Þeir gerðu það þarna.“ Eiður Smári, sem varð í tvígang Englandsmeistari með Chelsea á sínum tíma, lagði síðan orð í belg og sagðist myndu hafa tekið annan miðjumann frá Newcastle United heldur en Guimaraes hefði hann fengið að ráða. „Ég er ekkert svona rosalega hrifinn af Bruno Guimaraes. Ég hefði frekar, ef ég hefði fengið að velja milli tveggja, tekið Joelinton frá Newcastle. Krafturinn í honum, hæð, styrkur. Því í raun vantar Arsenal ekkert miðjumann. Þeim vantar bara leikmenn til að geta róterað aðeins meira. Af þessum tveimur hefði ég haldið að Joelinton úr Newcastle liðinu hefði verið póstur.“ Umræðuna úr Messunni um Bruno Guimaraes og Arsenal má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni hér á Vísi sem og á Sýn+
Arsenal FC Messan Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn Messi skoraði en allt varð vitlaust í lokin Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Fleiri fréttir Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Liverpool samþykkir tilboð í Curtis Jones Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Marcus Rashford búinn að fá nóg Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Lík fannst á leikvangi Charlton Baleba færist nær United Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Táningarnir sem gætu slegið í gegn í ensku úrvalsdeildinni í vetur Nýr stjóri Newcastle fær bakvörð sem hann þekkir vel Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Manchester City að fá liðsfélaga Hákons í stað Rodri Fernandes ekki á förum Með Liverpool-tattú en samdi við Everton Sjáðu mörkin sem tryggðu Arsenal skjöldinn Eiður Smári í enska boltann á Sýn Sport Þakkar AC Milan fyrir að fella sig á læknisskoðun: „Alvarlegra en ég hélt“ Gáfuð klósett hjálpa fótboltamönnum Barcelona og Man. City ná saman um kaupin á Rodri Jacquet skoraði í fyrsta leiknum með Liverpool Arteta var „dálítið hissa“ en þetta var sárt fyrir Maresca „Við spiluðum frábæran fótbolta“ Arsenal vann Samfélagsskjöldinn með öruggum sigri á City Liverpool og Como skildu jöfn í markalausum leik West Ham kaupir Arne Engels Sjá meira