Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Bylgjan 21. ágúst 2026 10:12 Árlegir tónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt er fyrir löngu orðinn einn af hápunktum dagsins. Nýdönsk tróðu upp í fyrra við góðar undirtektir. Myndir/Hulda Margrét. Bylgjan fagnar 40 ára afmæli í ár og af því tilefni verður slegið upp risaafmælistónleikum í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt næsta laugardag í samstarfi við Coca-Cola. Útvarpsstöðin fór fyrst í loftið 28. ágúst 1986 og hefur því glatt landsmenn í fjóra áratugi. „
Bylgjan hefur verið björt og brosandi í 40 ár og við lofum frábærri stemningu á laugardaginn enda mun rjóminn af íslensku tónlistarfólki troða þar upp,“ segir Agnes Ýr Arnarsdóttir, sem sér um skipulag tónleikanna. „Þau sem troða upp eru Birgitta Haukdal, Friðrik Dór, Bandmenn, Stefán Hilmarsson, Kristmundur Axel, Erna Hrönn, Á móti sól og fjörkálfarnir í FM95BLÖ.“ Rjóminn af íslensku tónlistarfólki kemur fram á risaafmælistónleikum í Hljómskálagarðinum á Menningarnótt. Tónleikarnir hefjast kl. 18 og standa yfir til kl. 21.45. „Síðan verður hellingur af spennandi matarvögnum í garðinum og alls kyns skemmtilegheit í boði. Það er því ljóst að gestir Menningarnætur hafa allt til alls í Hljómskálagarðinum á laugardagskvöldinu. Ég hvet sem flesta til að mæta og fagna stórafmælinu með okkur, þetta verður örugglega afmælisveisla ársins.“ Hulda Margrét ljósmyndari var á tónleikunum á síðasta ári og tók nokkrar myndir. Lífið er lag í nýrri afmælisútgáfu Fyrr í sumar tók landslið íslenskra söngvara upp sérstaka fjörutíu ára afmælisútgáfu af slagaranum ódauðlega „Lífið er lag“ sem stjörnum prýdda stórsveitin Módel sendi frá sér árið 1987. „Í nýju útgáfunni mætir Eiríkur Hauksson aftur til leiks en hann söng lagið á sínum tíma. Með honum í afmælisútgáfunni eru Una Torfa, Gunna Óla, Magni, Stefán Hilmarsson, Erna Hrönn, Helgi Björns, Beggi í Sóldögg, Diljá Pétursdóttur, Birgitta Haukdal, Kristmundur Axel, Júlí Heiðar og Dísa, Jónsi í Svörtum fötum og Sigga Beinteins. Lagið fékk frábærar viðtökur hjá hlustendum Bylgjunnar,“ segir Agnes. Eldist eins og gott rauðvín Bylgjan sigldi inn í 40 ára afmælisárið með byr í seglum. Rafrænar ljósvakamælingar Gallup árið 2025 sýndu að Bylgjan átti 45 af 50 mest hlustuðu klukkustundum ársins í útvarpi í aldurshópnum 12-80 ára. Bylgjan átti auk þess 58 af 60 mest hlustuðu klukkustundunum í aldurshópnum 18-49 ára. Agnes Ýr Arnarsdóttir sér um skipulag afmælistónleikana á laugardag. Hér er hún ferð með Bylgjulestinni í sumar. „Það má því segja að Bylgjan eldist eins og gott rauðvín og við horfum spennt til framtíðar með frábærri dagskrá, úrvals starfsfólki og auðvitað bestu tónlistinni. Á afmælisdaginn sjálfan, 28. ágúst, verður síðan boðið upp á fjölbreytta afmælisdagskrá en streymt verður beint úr Bylgjustúdíóinu á Vísi milli kl. 6.50 og 18.30. Margir góðir gestir munu kíkja í heimsókn, þar á meðal Gulli Helga og Jón Axel (Tveir með öllu), Hallgrímur Thorsteinsson, Steingrímur Sævarr Ólafsson, Snorri Már Skúlason, Skúli Helgason, Jakob Bjarnar, Davíð Þór Jónsson og Þórdís Valsdóttir. Stjórnin, Á móti sól og Stebbi Hilmars kíkja líka í heimsókn og væntanlega einhverjir fleiri.“
Bylgjan Menningarnótt Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Aldur er ekki hindrun heldur nýtt skeið í lífinu „Ég hef svo margar spurningar fyrir Georg Bjarnfreðarson!“ Tíu algeng mistök í daglegri hárumhirðu „Nú skaltu bara fara í pottinn, Pottakóngur!“ Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Próteinskammtur alltaf með í töskunni Þrjátíu árum fagnað með fullu húsi og mikilli matarveislu Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Prjónaæði grípur um sig meðal Íslendinga Hátt í þúsund manns mættu í matar- og vínveislu Innnes Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Betri svefn byrjar á því sem er næst húðinni 1991 var eitt stærsta ár tónlistarsögunnar Tveggja ára og talar betri íslensku en flest Nýr sólarhringsstaður á Miklubraut: Sbarro, kaffi og verslun allan sólarhringinn Meira til baka með Takk í Bónus og Hagkaup Smellir George Michael lifna við á tónleikum í Hörpu og Hofi Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Sjá meira