Innlent

Engin þjónusta: „Staðan er náttúru­lega graf­alvar­leg á þessu svæði“

Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar
Bára Eyfjörð Heimisdóttir er formaður Félags Dýralækna.
Bára Eyfjörð Heimisdóttir er formaður Félags Dýralækna. aðsend

Grafalvarleg staða er á Suðausturlandi þar sem enginn dýralæknir er starfandi á stórum hluta svæðisins og fá bændur því enga heilbrigðisþjónustu fyrir veik og slösuð dýr. Þetta segir formaður Dýralæknafélags Íslands sem segir bændur órólega og stjórnvöld engu svara. 

Svæðið sem um ræðir nær frá Djúpavogi suður að Gígjukvísl og hefur enginn dýralæknir verið starfandi á svæðinu frá því í síðustu viku þegar dýralæknir sem starfaði á Höfn lét af störfum.

Bára Eyfjörð Heimisdóttir, formaður Dýralæknafélags Íslands segir stöðuna alvarlega.

„Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði. Á Höfn og nágrannasveitum Hafnar þar sem að það er enginn dýralæknir frá Kirkjubæjarklaustri að Breiðdalsvík og enga þjónustu að fá frá dýralækni á þessu svæði, þannig að það er grafalvarlegt.“

Rúmlega þriggja klukkutíma aksturskafli

Aðspurð hvernig standi á því segir Bára að í fyrsta lagi séð svæðið allt of stórt sem valdi því að vakthafandi dýralæknir þurfi að aka langar vegalengdir.

„Matvælastofnun er ítrekað búin að senda út auglýsingar til að reyna að fá dýralækna til að taka þetta að sér. En starfsskilyrði eru bara ekki nógu aðlaðandi þar sem að svæðið er svo stórt og það er svo erfitt að vera alltaf á vakt og hafa engan til að skipta vaktinni með eða láta bara fjölskyldulíf og starfið ganga upp saman.“

Endurskoða þurfi greiðslur og bakvaktakerfi

Nauðsynlegt sé að minnka svæðin en áður fyrr voru svæðin mun fleiri og minni, auk þess sem endurskoða þurfi bakvaktakerfi dýralækna um allt land. Þá segir Bára að endurskoða þurfi greiðslur til dýralækna sem í dag séu allt of lágar og gera starfsvettvanginn aðlaðandi fyrir unga dýralækna.

„Fólk tekur þetta ekki að sér á þessum launum eins og þau gefa í dag kannski í vasann á bilinu 15.000 upp í 25.000 fyrir 16 tíma vakt.“

Stjórnvöld engu svarað

Bára segir félagið hafa reynt að ná eyrum stjórnvalda en engin svör fengið. Bændur og aðrir sem haldi dýr á svæðinu séu órólegir.

„Það er svo skiljanlegt að þeim lítist ekki á blikuna af því að það er náttúrulega bara ömurlegt að vera í þeirri stöðu að þurfa að horfa upp á veik og jafnvel slösuð dýr og enga hjálp að fá og eina leiðin eins og jafnvel fyrir bændur að skjóta dýrið. Það er náttúrulega bara ömurlegt.“

Málið snúist um dýravelferð.

„Ég vil bara fyrst og fremst ná eyrum stjórnvalda og þeirra sem að fara með þessi mál, af því að það eru ekki dýralæknar, það eru ekki bændur eða Matvælastofnun sem leysa þetta, það eru stjórnvöld. Og þetta samtal þurfum við að fá hratt og fljótt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×