Viðskipti innlent

Jón Þór fer til Sam­herja

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Jón Þór tekur við af Karli Eskil sem hættir vegna aldurs.
Jón Þór tekur við af Karli Eskil sem hættir vegna aldurs. Sindri Swan

Jón Þór Kristjánsson hefur verið ráðinn verkefnastjóri upplýsingamiðlunar hjá Samherja. Hann hefur reyslu úr fjölmiðlum en hefur starfað síðustu ár hjá Akureyrarbæ.

Greint er frá vistaskiptunum í tilkynningu frá Samherja. Þar kemur fram að Jón Þór sé með bakkalárgráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í opinberri stefnumótum frá Edinborgarháskóla.

Hann hefur starfað sem fréttamaður hjá Viðskiptablaðinu, N4 og RÚV. Undanfarin ár hefur hann starfað sem verkefnastjóri upplýsingamiðlunar og síðar forstöðumaður þjónustu og þróunar hjá Akureyrarbæ.

„Hjá Samherja starfar samheldin áhöfn, sem hefur átt stóran þátt í að þróa með markvissum hætti þetta framsækna og tæknivædda fyrirtæki. Félagið er vel búið, hvort sem við erum að tala um glæsilegan skipaflota, tæknivæddar landvinnslur, landeldi eða öfluga sölu- og dreifingu afurða og greinilega valinn maður í hverju rúmi. Ég er fullur tilhlökkunar að taka þátt í starfseminni enda mörg spennandi verkefni í undirbúningi innan félagsins sem kalla á markvissa miðlun og samskipti,“ er haft eftir Jóni Þór.

Karl Eskil Pálsson hefur undanfarin ár sinnt upplýsingamiðlun Samherja. Hann lætur af störfum um mánaðamótin vegna aldurs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×