Enski boltinn

Haaland snoðaði sig fyrir fyrsta leik í enska

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Erling Haaland mun líta allt öðruvísi út í leiknum á eftir. 
Erling Haaland mun líta allt öðruvísi út í leiknum á eftir.  getty / instagram /@erling

Erling Haaland ákvað að láta fagurt hár sitt fjúka fyrir fyrsta leik Manchester City í ensku úrvalsdeildinni á eftir.

Haaland birti myndband á YouTube rétt áðan þar sem hann sýndi frá breytingunni en hann snoðaði sig í gærkvöld, degi fyrir leikinn gegn Bournemouth á eftir.

Í myndbandinu má líka sjá að Haaland hringdi í nokkra góða félaga til að sýna þeim nýju greiðsluna, þeirra á meðal Pep Guardiola, fyrrum knattspyrnustjóra Manchester City.  

Haaland hefur kannski fengið nóg af hárinu eftir 3-0 tap gegn Arsenal í Samfélagsskildinum um síðustu helgi. Af einhverjum ástæðum ákvað hann allavega að taka af sér hárið, sem hefur verið hans helsta einkennismerki síðustu ár.

Markavélin mikla mun mæta til leiks í ensku úrvalsdeildinni klukkan 13:00, þegar Manchester City tekur á móti Bournemouth í beinni útsendingu á Sýn Sport.


Tengdar fréttir

„Ég mun reyna að finna nýjan Rodri“

Enzo Maresca þjálfari Manchester City er í leit að „nýjum Rodri“ í stað Spánverjans sem fór til Barcelona í síðustu viku. Maresca segir City hafa ítrekað sýnt fram á hæfni í að endurnýja hópinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×