Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 23. ágúst 2026 18:43 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, var einn gesta í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sýn/Arnar Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair telur að þunglamaleg reglugerð Evrópusambandsins geti þrengt að rekstri fyrirtækja innan sambandsins og gæta þurfi að samkeppnishæfni þeirra. Hins vegar stuðli vinnumarkaðsmódelið hérlendis að óstöðugleika og geti verið heilmikil áskorun í fyrirtækjarekstri. Sveinn Logi Sölvason forstjóri Emblu Medical, móðurfélags Össurar, segir möguleg tækifæri innan myntbandalags Evrópusambandsins.
Bogi Nils og Sveinn Logi voru til viðtals í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun og ræddu bæði áskoranir og tækifæri alþjóðlegs fyrirtækjareksturs innan Evrópusambandsins. Hlusta má á viðtalið í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Bogi segir Evrópusambandið setja hamlandi reglur fyrir samkeppnishæfni flugfélaga í Evrópu. Verði til aðildar Íslands að Evrópusambandinu hafi reglugerðir sambandsins slæm áhrif á rekstur flugfélaga á Íslandi og þar af leiðandi íslenskt hagkerfi. „Og vegna þess hvar við erum stödd hérna í miðju Atlantshafinu, þá hefur þetta sérstaklega slæm áhrif á Ísland, flugfélög sem gera út frá Íslandi og tengimiðstöðina hérna á Íslandi og þar af leiðandi bara íslenska hagkerfið,“ segir Bogi. Evrópusambandið setji flugi í Evrópu stólinn fyrir dyrnar Ekki myndi breyta neinu að vera með sæti við borðið að sögn Boga. Nýleg skýrsla sýni fram á að samkeppnishæfni Evrópu sé á fallandi fæti vegna regluverksins innan Evrópusambandsins. „Það er áfram verið að horfa til þess að skerða samkeppnishæfni evrópskra flugfélaga og sérstaklega flugfélaga sem gera út frá Íslandi af því að við erum að fljúga lengri leiðir innan þessa kerfis heldur en allir aðrir,“ segir Bogi. Samþykkt hafi verið að veita Íslandi sérlausn næstu þrjú árin „en í flugrekstri þarf að horfa til mjög langs tíma,“ segir Bogi. Þó að Ísland fái sérlausn sé reksturinn undir í samkeppnishæfni, bæði við önnur evrópsk flugfélög og bandarísk. „Sú gagnrýni á fyllilega rétt á sér og það þarf að gæta miklu betur að samkeppnishæfni fyrirtækja innan Evrópusambandsins,“ segir Sveinn þá. Krefjandi að vera með gjaldmiðil sem tekur mið af sveiflum í Evrópu Sveinn og Bogi sammælast um það að vinnumarkaðsmódelið á Íslandi geti valdið óstöðugleika og sé áskorun í alþjóðlegum fyrirtækjarekstri hérlendis. Erfitt sé að sannfæra erlenda fjárfesta um að koma inn í íslensk krónuviðskipti. „Þegar við berum okkur saman við nágrannalöndin sem við erum að keppa við þá erum við að hækka laun hér langt umfram það sem að útflutningsgreinarnar þola. Það eru önnur lönd ekki að gera. Það er mjög krefjandi og er að mínu mati okkar stærsti veikleiki,“ segir Bogi. Þeir sammælast um bæði megi nefna kosti og galla við krónu og evru. Krónan sé ekki „stóra vandamálið“ í rekstri Icelandair en ekki sé ákjósanlegt fyrir litla þjóð að vera með eigin gjaldmiðil, segir Bogi. „Ég sé ekki alveg hvernig það verður fyrir okkur ef við tækjum upp evru. Gjaldmiðillinn aðlagar kerfið að því hvernig gengur og ég held að það geti verið ansi krefjandi að vera með gjaldmiðil sem tekur mið af því hvernig gengur á Ítalíu, Frakklandi og Spáni, bæði í niðursveiflu og uppsveiflu,“ segir Bogi Sveinn Logi Sölvason, forstjóri Emblu Medical, móðurfyrirtækis Össurar, segir mikilvægt að skoða kerfið sem við séum að vinna eftir svo hægt sé að færast nær stöðugleika.Aðsend Eitthvað í kerfinu búi til óstöðugleika og ófyrirsjáanleika hagkerfisins að sögn Sveins. Sameiginlega sýn þurfi á hvernig eigi að stilla þessi kerfi til þess að hægt sé að mynda meiri stöðugleika. „Við þurfum að skoða kerfið sem við erum að vinna eftir. Við erum með lítið hagkerfi sem er með fáar, stundum sveiflukenndar, tekjustoðir. Við erum með lítinn gjaldmiðil sem er sveiflukenndur líka og við erum með verðtryggðu krónuna og óverðtryggðu krónuna. Við flytjum allt inn sem við þurfum að nota,“ segir Sveinn. Mikilvægt sé fyrir Ísland að byggja á fleiri stoðum hvað verðmætasköpun varðar. Tækifæri séu innan myntbandalags Evrópusambandsins til að skapa stöðugt umhverfi fyrirtækja á Íslandi. „Okkur hefur gengið vel að búa til fleiri fyrirtæki eins og Össur, en það er tækifæri til þess að, með því að stefna á að vera hluti af myntbandalaginu, að búa til einhvern farveg þar sem við getum skref fyrir skref fært okkur inn í stöðugt umhverfi hvað þessi gjaldmiðlamál varðar og búið þar til meiri stöðugleika í umhverfi fyrirtækja hér á Íslandi, sem ég held að skipti mjög miklu máli þegar við horfum fram á veginn og hvernig við ætlum að skjóta hér fleiri stoðum undir verðmætasköpun á Íslandi,“ segir Sveinn Logi.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Flug Vinnumarkaður Samkeppnismál Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Sjá meira