Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Freyja Þórisdóttir skrifar 23. ágúst 2026 21:13 Arnarhóll var óvenju litafagur í gær, á Menningarnótt laugardaginn 22. ágúst, þar sem fjölmargir gestir Tónaflóðs klæddust regnjökkum í frumlitunum. Vísir/Viktor Freyr Gríðarlegur fjöldi fólks var samankominn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi þegar Menningarnótt fór fram með tilheyrandi gleði og glaum. Það voru ríflega fjögur hundruð viðburðir á dagskrá en þar má meðal annars nefna bekkpressukeppni, vöfflukaffi, spunamaraþon og blómakransagerð.
Hið árlega Tónaflóð Rásar 2 fór svo fram á Arnarhóli um kvöldið en meðal þeirra sem komu fram á tónleikunum voru Jói P. og Króli, Árný Margrét, Daði Freyr, Benni Hemm Hemm og Páll Óskar. Að loknum tónleikum gátu gestir dáðst að flugeldasýningu líkt og síðust ár. Ljósmyndarar Vísis voru svo sannarlega viðstaddir hátíðarhöldin en hér fyrir neðan má líta á nokkrar af myndunum sem skiluðu sér í hús eftir að Menningarnótt var slitið að þessu sinni. Meðal þeirra fjölmörgu tónlistarmanna sem stigu á stokk í gærkvöldi var Björgúlfur Jes Einarsson, söngvari og gítarleikari, en hann tryllti lýðinn ásamt félögum sínum í hljómsveitinni Spacestation. Vísir/Viktor Freyr Það fór vart fram hjá neinum að lögreglan sinnti viku eftirliti í miðbæ Reykjavíkur á Menningarnótt en í dagbók morgunsins kom fram að talsvert hefði verið um ungmennadrykkju.Vísir/Viktor Freyr Hvar er Valli?Vísir/Viktor Freyr Það stytti upp þegar leið á kvöldið en þrátt fyrir rigningu og rok fyrri hluta tónleikanna var mikill fjöldi fólks samankominn við sviðið.Vísir/Viktor Freyr Mikill erill var hjá lögreglunni í miðbæ Reykjavíkur í gær og í nótt, á sjálfa Menningarnóttina, en alls voru 244 mál bókuð í kerfum lögreglu, sem er heldur mikið.Vísir/Viktor Freyr Á tónleikunum komu meðal annara fram JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm en barnakór söng með Palla í laginu Eitt af blómunum í lok tónaflóðs.Vísir/Viktor Freyr Tónlistaratriði kvöldsins voru ekki af verri endanum. Á myndinni er hin glæsilega Árný Margrét.Vísir/Viktor Freyr Sumir kusu að mæta í „matching“ regnfötum eins og unga fólkið myndi segja.Vísir/Viktor Freyr Það var standandi partí á Austurvelli í gær.Vísir/Viktor Freyr Elín Hall hefur komið víða að en hún lét sig að sjálfsögðu ekki vanta á stóra sviðið í gær.Vísir/Viktor Freyr Flestir, ef ekki allir, og frænkur þeirra kíktu við á Arnarhóli á Menningarnótt í gærkvöldi en tónleikarnir hófust klukkan 19:00 og þeim lauk um klukkan 22:00.Vísir/Viktor Freyr Daði Freyr var á eldi í gærkvöldi en hann hefur komið víða fram í Bandaríkjunum og á stóran hóp erlendra aðdáenda.Vísir/Viktor Freyr Sumarsmellurinn „Ástin dugir að eilífu“ með Unun og Páli Óskari var einn heitasti smellur landsins 1995 en hann var rifjaður upp á Menningarnótt í gær. Eflaust ákveðin nostalgía fyrir hluta áhorfenda.Vísir/Viktor Freyr
Tónleikar á Íslandi Menningarnótt Tónlist Reykjavík Samkvæmislífið Tengdar fréttir Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Hið árlega Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í morgun. Sextán þúsund hlauparar spreyttu sig í rigningunni í höfuðborginni. 22. ágúst 2026 20:33 Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju Lögregla hafði afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna unglingadrykkju. Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur í gær vegna Menningarnætur en lögregla segir kvöldið og nóttina hafa gengið vel. 23. ágúst 2026 13:48 Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Þrátt fyrir að veðrið sé að mati margra ekki með besta móti má ætla að fjöldi fólks leggi leið sína niður í miðbæ Reykjavíkur í kvöld á Menningarnótt. Dagurinn hefur gengið eins og í sögu og er útlit fyrir að allt skipulag, götulokanir þar á meðal, hafi farið fram líkt og best væri á kosið. Áratuga reynsla spili inn í velheppnaða viðburði sem þessa. 22. ágúst 2026 19:17 Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Lífið Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Smáhestar flúðu úr verslunarmiðstöð Skrifborð Megasar eins og hjá skurðlækni Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Sjá meira
Myndasyrpa frá Reykjavíkurmaraþoninu: Bleyta, bætingar og bros Hið árlega Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fór fram í morgun. Sextán þúsund hlauparar spreyttu sig í rigningunni í höfuðborginni. 22. ágúst 2026 20:33
Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju Lögregla hafði afskipti af á fjórða tug ungmenna vegna unglingadrykkju. Mikill erill var í miðbæ Reykjavíkur í gær vegna Menningarnætur en lögregla segir kvöldið og nóttina hafa gengið vel. 23. ágúst 2026 13:48
Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Þrátt fyrir að veðrið sé að mati margra ekki með besta móti má ætla að fjöldi fólks leggi leið sína niður í miðbæ Reykjavíkur í kvöld á Menningarnótt. Dagurinn hefur gengið eins og í sögu og er útlit fyrir að allt skipulag, götulokanir þar á meðal, hafi farið fram líkt og best væri á kosið. Áratuga reynsla spili inn í velheppnaða viðburði sem þessa. 22. ágúst 2026 19:17