Viðskipti innlent

Hættir sem for­stjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect

Atli Ísleifsson skrifar
Álfheiður Ágústsdóttir.
Álfheiður Ágústsdóttir.

Álfheiður Ágústsdóttir hyggst láta af störfum sem forstjóri Elkem og hefur verið ráðin aðstoðarforstjóri Travel Connect.

Í tilkynningu frá Travel Connect segir að hún hafi verið ráðin aðstoðarforstjóri og að fjármála- og innkaupastarfsemi félagsins falli  undir hennar svið, sem og dótturfélög samstæðunnar.

„Álfheiður kemur frá Elkem Ísland þar sem hún hefur gegnt starfi forstjóra frá árinu 2020 og var þar áður fjármálastjóri hjá sama fyrirtæki. Álfheiður er með B.Sc. próf í viðskiptafræði og M.Sc. í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur víðtæka reynslu af nefndar- og stjórnarstörfum í íslensku atvinnulífi og situr nú í stjórn Kaldalóns hf.

Ráðning Álfheiðar er liður í að styrkja stjórnendateymi Travel Connect fyrir næsta vaxtarskeið félagsins. Hún tekur við starfi aðstoðarforstjóra af Davíð Harðarsyni sem hefur tekið við sem stjórnarformaður félagsins og mun í því hlutverki leiða ytri vöxt samstæðunnar með áherslu á áframhaldandi alþjóðlega sókn og þróun.

Travel Connect samanstendur af sjö ferðaþjónustufyrirtækjum með starfsemi á Íslandi, í Svíþjóð, Skotlandi, Þýskalandi og á Ítalíu. Þau eru Nordic Visitor, Iceland Travel, Terra Nova, Iceland Tours, Iceland Unlimited, Nine Worlds og Senlinmao. Hjá samstæðunni starfa um 350 manns.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×