Hval­fjarðar­sveit

Hval­fjarðar­sveit

Mannfjöldi: 760 (2025). Flatarmál: 479 ferkílómetrar. Stærstu byggðakjarnar: Melahverfi, Leirársveit.


Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Mót­mælir harð­lega vítissóda­til­raunum í Hval­firði

Karl Gauti Hjaltason þingmaður Miðflokksins segir að á næstu dögum muni fara fram einkennileg tilraun í nágrenni höfuðborgarinnar: hella eigi átta tonnum af natríumhýdroxíði, öðru nafni vítissóda, í Hvalfjörðinn. Þetta sagði hann í dagskrárliðnum Störfum þingsins í gær.

Innlent
Fréttamynd

Loftslagstilraun hefst í Hval­firði á næstu dögum

Basalausn verður veitt út í Hvalfjörð í tilraun sem á að auka kolefnisupptöku sjávar á næstu dögum eftir að leyfi fékkst fyrir rannsókninni. Utanríkisráðherra synjaði umsókn um leyfi til tilraunarinnar í fyrra þar sem honum þótti lagaramma skorta um slíkar rannsóknir.

Innlent
Fréttamynd

Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saur­bæ

Fyrir tæpum þrjátíu árum tók Grensáskirkja nýtt orgel í notkun og hefur gamla orgelið síðan þá nýst í kennslu. Söfnuður kirkjunnar ákvað svo í vetur að færa Hallgrímskirkju í Saurbæ gamla orgelið. Um páskana var orgelið tekið í notkun í Saurbæ og síðasta sunnudag var haldin sameiginleg mess safnaðanna þar sem gjöfinni var formlega fylgt úr hlaði.

Menning
Fréttamynd

Þyrlan sótti slasaðan göngumann við Glym

Kallað var til aðstoðar þyrlu Landhelgisgæslunnar um klukkan fjögur síðdegis vegna slasaðs göngumanns í nágrenni við Glym fyrir botni Hvalfjarðar. Svæðið þar sem maðurinn slasaðist er með öllu ófært bílum.

Innlent
Fréttamynd

Loka Hval­fjarðar­göngunum ef um­ferð verður of mikil

Ef umferð snareykst í Hvalfjarðargöng gæti þurft að loka þeim tímabundið í dag. G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir umferð ganga vel og hún hafi dreifst vel síðustu daga. Hann eigi ekki endilega von á því að Vegagerðin muni þurfa að grípa til lokana en það geti gerst.

Innlent
Fréttamynd

Vegir og gatna­mót í Hval­firði komnir að þolmörkum

Vegir og gatnamót í Hvalfjarðarsveit eru komnir að þolmörkum að sögn sveitarstjóra sem segir of mörg alvarleg umferðarslys verða í Hvalfirði. Hann kallar eftir tafarlausu samtali við stjórnvöld vegna málsins og segir ekki hægt að bíða lengur eftir aðgerðum.

Innlent
Fréttamynd

Flýtum tvö­földun Vestur­lands­vegar – í þágu umferðaröryggis

Ný samgönguáætlun ríkisstjórnarinnar sendir að sumu leyti jákvæð skilaboð til íbúa á Vesturlandi. Þar er meðal annars gert ráð fyrir tvöföldun Vesturlandsvegar, þjóðvegar 1, á kaflanum frá Hvalfjarðargöngum að Borgarnesi. Það eru jákvæð tíðindi enda er um einn fjölfarnasta kafla þjóðvegar landsins að ræða og leið sem þúsundir ökumanna fara um á hverjum degi.

Skoðun
Fréttamynd

Tengivagn valt á Vestur­lands­vegi

Lögregla var kölluð til á fjórða tímanum vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi þar sem flutningabíl með tengivagn í eftirdragi hafði misst tengivagninn út af svo hann valt.

Innlent
Fréttamynd

Heil­brigðis­eftir­litið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslu­stöð Hvals

Framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Vesturlands segir að fyrri yfirlýsing um óásættanlega meðhöndlun Hvals hf. á soðvatni hafi byggt á röngum upplýsingum. Fitugildra í vinnslustöðinni virðist virka en unnið sé að því að greina hvort fita og önnur efni séu fjarlægð með fullnægjandi hætti. Myndefni sem fulltrúar Paul Watson-samtakanna segjast hafa tekið í dag sýnir mengun í fjörunni við vinnslustöðina sem heilbrigðiseftirlitið hefur ekki séð áður.

Innlent
Fréttamynd

Breskt her­skip siglir um Hval­fjörð

Breska flugmóðurskipið HMS Prince of Wales er nú statt í Hvalfirði en bresk flotadeild hefur tekið þátt í æfingum NATO á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Æfingar tengdar loftrýmiseftirliti og loftvörnum fara fram við Ísland. 

Innlent
Fréttamynd

Þrjú til­vik til rann­sóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum

Bandero hefur enn ekki komist í grennd við hvalveiðibáta Hvals þrátt fyrir yfirlýsingar um að skip Paul Watson-samtakanna stefni nú hraðbyri í átt að hvalamiðum. Mast hefur nú að minnsta kosti þrjú atvik til rannsóknar þar sem grunur leikur á um að ekki hafi verið staðið með réttum hætti að veiðum.

Innlent
Fréttamynd

Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn

Á þriðjudag vakti myndband af uppátæki starfsmanns Hvals hf. sem lék sér að limi hvalhræs sem Hvalur 8 dró að landi mikla athygli. Uppátækið virðist ekki vera einsdæmi en ljósmynd frá árinu 2023 sýni starfsmann Hvals í svipuðu látæði. 

Innlent
Fréttamynd

Spiluðu þjóð­sönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land

Hvalveiðiskipið Hvalur 8 dró tíunda hval veiðivertíðarinnar að landi á öðrum tímanum í dag en þjóðsöngur Íslands var spilaður í hátalarakerfi á höfninni meðan á verkinu stóð. Þá mátti heyra menn hrópa „áfram Ísland“ og tók einn starfsmaður Hvals sig til og sveiflaði getnaðarlim hvalsins að tökumanni fréttastofunnar.

Innlent
Fréttamynd

Segir upp­haf hvalvertíðar vera gleði­tíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“

Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur.

Innlent
Fréttamynd

Á­höfnin hlúði að Hólm­steini á siglingunni til Hval­fjarðar

Mótmælaaðgerð Hólmsteins Harðarsonar, þar sem hann kom sér fyrir í tunnu í mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9, vakti mikla athygli í gær. Með því vildi hann freista þess að fresta för skipsins út til veiða. Það fór engu að síður svo að skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn og sigldi norður til Hvalfjarðar. Sjá mátti tvo áhafnarmeðlimi hlúa að Hólmsteini þegar skipið sigldi inn Hvalfjörðinn. 

Innlent