Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 27. ágúst 2026 09:35 Yaoyi Kusama lést 14. ágúst síðastliðinn, 97 ára að aldri. EPA Ein þekktasta samtímalistakona Japans, Yayoi Kusama, er látin 97 ára að aldri. Myndlist Kusama einkenndist af doppum, skynörvandi munstrum og endalausum speglum og bar listakonan jafnan eldrauða hárkollu og klæddist litríkum flíkum í stíl við listina.
Kusama fæddist 22. mars árið 1929 inn í efnaða kaupmannsfjölskyldu í borginni Matsumoto og byrjaði ung að iðka listsköpun. Kusama fór í listnám í Kyoto, fékk eftir það nóg af japanskri list og flutti úr landi á sjötta áratugnum, fyrst til Parísar og síðan Bandaríkjanna. Þar hóf Kusama að þróa doppulist sína og varð þekkt fyrir skynörvandi liti sína, speglainnsetningar og umdeilda gjörninga. Hún taldi sig þó aldrei hafa verið almennilega viðurkennda af bransanum og fannst henni margir kollega sinna, svo sem Andy Warhol, hafa tekið hugmyndir hennar og nýtt sér þær. Yayoi Kusama fyrir framan nokkur verka sinna.EPA Á seinni hluta sjöunda áratugarins átti hún í nánu og ástríðufullu sambandi við listamanninn Joseph Cornell en hann lést árið 1972. Næstu ár eftir það hrakaði andlegri heilsu Kusama svo mikið að árið 1977 ákvað hún að leggjast sjálfviljug inn á geðsjúkrahús. Kusama naut verunnar á spítalanum svo að hún bjó þar og starfaði til dauðadags, 14. ágúst 2026, í um hálfa öld. Kusama naut ekki þeirrar velgengni sem hún taldi sig eiga skilið meirihluta ferilsins en síðustu þrjátíu ár var hún enduruppgötvuð og öðlaðist sérstaklega miklar vinsældar á tímum samfélagsmiðla. Árið 2018 kom út heimildarmyndin Kusama: Infinity um ævi og störf listakonunnar.
Myndlist Japan Andlát Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Fleiri fréttir Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Sjá meira