Körfubolti

Grinda­vík mokar inn verð­launum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Garðar Örn Arnarson leikstjóri og Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur og einn af aðalviðmælendum þáttanna, sitja fyrir svörum í Las Vegas.
Garðar Örn Arnarson leikstjóri og Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur og einn af aðalviðmælendum þáttanna, sitja fyrir svörum í Las Vegas. mynd/aðsend

Sigurganga íþróttaheimildarþáttanna Grindavík á kvikmyndahátíðum heldur áfram.

Í þessari viku fengu þættirnir stærstu verðlaunin á einni stærstu kvikmyndahátið sem er helguð íþróttum. Það er Summer League Festival sem fór fram í síðasta mánuði í Las Vegas samhliða NBA Summer League.

Hátíðin var nú haldin í þriðja sinn og er samstarfsverkefni NBA, framleiðslufyrirtækis fyrrverandi NBA-meistarans Kevin Garnett, framleiðslufyrirtækis leikarans Mark Wahlberg og kvikmyndaframleiðandans Deon Taylor. Markmið hennar er að draga fram áhrif íþrótta á samfélagið og heiðra framúrskarandi heimilda- og kvikmyndagerð.

„Að komast í opinbert val hátíðarinnar telst mikill heiður og að vinna er enn ótrúlegra enda er samkeppnin gríðarlega sterk. Meðal myndanna sem valdar voru í ár eru þrjú verk þar sem Michael Jordan er í hlutverki viðmælanda. Þá er Charles Barkley framkvæmdaframleiðandi einnar myndarinnar og leikstjóri annarrar er jafnframt einn af framleiðendum hinnar margverðlaunuðu Netflix-seríu The Last Dance um Jordan. Heimildarmynd Amazon Prime um Lakers goðsögnina Jerry West var ein myndin til að mynda. Samkeppnin í flokknum var því gríðarleg,“ segir í tilkynningu frá framleiðendum.

Grindavík er nú búið að sópa til sín sextán verðlaunum. Tveimur á Íslandi og fjórtán á erlendri grundu. Þættirnir eru aðgengilegir á Sýn+.


Tengdar fréttir

Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan

„Ég fór í viðtal við Víkurfréttir árið 1999 þar sem ég sagðist ætla í NBA þegar ég yrði stór. Ég sá aðkomu mína að deildinni ekki alveg svona en ætli markmiðinu sé ekki nokkurn veginn náð,“ segir Garðar Örn Arnarson, leikstjóri þáttanna Grindavík.

Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna

Körfuboltamaðurinn og Íslandsmeistarinn Ólafur Ólafsson úr Grindavík var í dag sæmdur heiðursmerki hinnar íslensku fálkorðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×