Körfubolti

Jón Arnór byrjar að þjálfa

Sindri Sverrisson skrifar
Jón Arnór Stefánsson þekkir það betur en flestir að spila í Laugardalshöll. Nú mun hann stýra æfingum þar.
Jón Arnór Stefánsson þekkir það betur en flestir að spila í Laugardalshöll. Nú mun hann stýra æfingum þar. vísir/Bára

Jón Arnór Stefánsson, einn farsælasti körfuboltamaður Íslands frá upphafi, hefur ákveðið að miðla af þekkingu sinni sem þjálfari í vetur.

Jón Arnór er á meðal þeirra sem þjálfa munu í yngri flokkum körfuknattleiksdeildar Ármanns í vetur en æfingar hefjast í næstu viku.

Hann mun þjálfa 10. og 11. flokk karla, sem sagt stráka sem fæddir eru 2011 og 2010, og þannig meðal annars þjálfa son sinn sem áður æfði með KR.

Flokkarnir sem Jón þjálfar munu ýmist æfa í íþróttahúsi Kennaraháskólans eða í Laugardalshöll, þar sem Jón hefur átt margar eftirminnilegar stundir, þar á meðal þegar hann lék sinn 100. og síðasta landsleik, í febrúar 2019. Hann lagði skóna á hilluna vorið 2021.

Jón Arnór lauk landsliðsferlinum í Laugardalshöll, með sínum 100. landsleik, en mun nú þjálfa unglinga þar.vísir/bára

Hefur beitt sér fyrir bættri aðstöðu

Jón Arnór er búsettur í Laugardal og hefur látið sig aðstöðumál í hverfinu varða. Hann var í viðtali við Guðjón Guðmundsson haustið 2021 þegar algjört neyðarástand ríkti hjá körfuknattleiksdeild Ármanns, einni allra stærstu körfuknattleiksdeild landsins, vegna lokunar Laugardalshallar. Jón valdi sjálfur á sínum tíma að æfa með KR í stað Ármanns til að komast í betri aðstöðu.

„Síðan 1992, þegar ég byrja, þá er nánast sama staða ef ekki verri. Ármann er hér í hverfinu orðinn það stórt félag að aðstaðan er ekki boðleg. Það er stór ástæða fyrir því að ég fór í KR á sínum tíma og sama er að gerast fyrir mín börn,“ sagði Jón í viðtalinu fyrir fimm árum.

„Ég er bara hérna sem íbúi þessa hverfis og faðir barna sem að stunda íþróttir með Þrótti og Ármanni, og vil vekja athygli á þessari hrikalega lélegu íþróttaaðstöðu sem við höfum í hverfinu. Þetta er mikið áhyggjuefni fyrir okkur foreldra. Börnin vilja stunda íþróttir, þau þurfa einhvers staðar að vera, og það er ekki aðstaða fyrir þau. Þetta er ákall til borgarinnar um að gera eitthvað í þessum málum,“ sagði Jón í viðtalinu.

Síðan þá hefur Laugardalshöllin opnað á ný og verið aðalæfingahöll Ármenninga en þeir bíða þó enn eftir aðstöðu sem þeir geta haft út af fyrir sig. Þá æfa yngstu iðkendur enn í smáum íþróttasal Laugarnesskóla.

Jón Arnór, sem er 43 ára, átti glæstan atvinnumannsferil og var meðal annars á mála hjá NBA-liði Dallas Mavericks í upphafi ferilsins, vann Evrópudeildartitil með rússneska liðinu Dynamo Saint Petersburg, en lék lengst af á Ítalíu og Spáni auk þess að vinna fjölda titla hér á landi með KR og Val.

Hann var valinn íþróttamaður ársins ári 2014 og hefur langoftast karla verið valinn körfuboltamaður ársins á Íslandi eða alls 12 sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×