Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 10:32 Þegar ég hóf nám við Háskóla Íslands fyrir tveimur árum hafði ég ekki mikinn áhuga á stúdentapólitík. Það kemur þeim sem þekkja mig kannski á óvart, enda hef ég alltaf haft mikinn áhuga á stjórnmálum og gaman af félagsstörfum. Stúdentapólitíkina þekkti ég þó aðeins lauslega og taldi ég hana ekki vera fyrir mig. Ég vissi að þar væru tvær fylkingar, Vaka og Röskva, og eins og svo margir hafði ég einhverja fyrirframgefna mynd af hvorri þeirra. Þegar leið á veturinn neyddist ég síðan, eins og flestir háskólanemar, til að kynnast stúdentapólitíkinni betur. Ekki endilega af eigin frumkvæði, heldur í gegnum samfélagsmiðla, kosningabaráttu og auðvitað símtölin. Því ef það er eitthvað sem Vaka og Röskva geta sameinast um þá er það trúin á að háskólanemar svari í símann. Þegar ég fór loksins að hlusta á það sem báðar hreyfingarnar höfðu að segja varð mér ljóst að ég vildi ekki velja fylkingu út frá fyrirframákveðnum hugmyndum. Ég kynnti mér málin og tók síðan afstöðu. Ég valdi Vöku. Það sem heillaði mig við Vöku er að þar kemur saman fólk með ólíkan bakgrunn og ólíkar pólitískar skoðanir, en sameinast um ákveðin grunngildi og sameiginlega hagsmuni. Maður þarf ekki að vera sammála um allt til að geta setið við sama borð og unnið saman. Það er þess vegna sem mér finnst umræðan um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst stundum svo einkennileg. Háskólinn kennir manni margt, en eitt af því mikilvægasta er hvernig maður kemst að niðurstöðu. Að afla sér upplýsinga, kynna sér heimildir, spyrja spurninga og beita gagnrýninni hugsun. Við eigum ekki að byrja á svarinu og leita svo að rökum sem passa við það. Við eigum að kanna málið fyrst og taka síðan afstöðu. Þess vegna finnst mér umræðan fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna oft svo einkennileg. Á morgun erum við ekki að kjósa um aðild að Evrópusambandinu, heldur um aðildarviðræður. Með já-i fáum við samning á borðið og þar með svör við spurningunum sem skipta okkur máli. Við eigum ekkert að óttast slíkt ferli. Noregur hefur tvisvar farið í aðildarviðræður við ESB, fengið samning og kosið um hann í þjóðaratkvæðagreiðslu. Í bæði skiptin sögðu Norðmenn nei og gengu einfaldlega ekki inn. Já núna varðveitir því bæði framtíðar já-ið og framtíðar nei-ið. Það heldur báðum dyrum opnum og gefur okkur tækifæri til að taka þessa stóru ákvörðun þegar við vitum raunverulega hvað okkur stendur til boða. Það gerir nei ekki. Nei lokar dyrunum áður en við vitum hvað er hinum megin og byggir ákvörðunina á ágiskunum. Á rúmri öld höfum við Íslendingar öðlast fullveldi og sjálfstæði, byggt upp öflugri sjávarútveg, umbreytt landbúnaði og tekið gríðarlegum framförum á öllum sviðum. Það er saga sterkra og framsýnna Íslendinga sem þorðu að líta út fyrir landsteinana, sækja sér þekkingu og semja um eigin hagsmuni. Við höfum ekki náð þessum árangri með því að gefa okkur fyrirfram að niðurstaðan yrði slæm. Við höfum farið sterk, stolt og örugg að samningaborðinu og barist fyrir því sem skiptir okkur máli. Af hverju ætti Ísland að gera eitthvað annað? Við erum lítil þjóð, en við eigum ekki að gera lítið úr okkur sjálfum eða gefa okkur fyrirfram að við getum ekki náð góðri niðurstöðu. Þann 29. ágúst vil ég ekki loka neinum dyrum fyrir Ísland vegna þess að ég er ekki alveg viss. Ég vil kynna mér valkostina með því að fá svörin á borðið og taka þannig upplýsta ákvörðun. Þess vegna ætla ég að segja já til að sjá þann 29. ágúst. Höfundur er verkfræðinemi við HÍ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna skiptir bókun 35 máli? Eiríkur S. Svavarsson skrifar Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Sjá meira
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun