Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Bílanaust 28. ágúst 2026 13:51 „Það er okkar hlutverk að finna réttu lausnina,“ segir Ingi Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Bílanausts. Það kannast líklega flestir bíleigendur við að þurfa eitthvað í bílinn en hafa litla hugmynd um hvað það heitir, hvaða gerð passar eða jafnvel hvar eigi að byrja að leita.
Rúðuþurrkurnar eru farnar að skilja eftir sig rendur. Bíllinn er orðinn tregur í gang. Pera í afturljósinu er farin. Farangursrýmið er ekki nógu stórt fyrir ferðalagið eða bón- og hreinsivörur vantar til að gera bílinn hreinan og fínan. Þá er lausnin einföld. „Við gerum ekki ráð fyrir því að viðskiptavinurinn viti nákvæmlega hvað hann þarf þegar hann kemur til okkar, en það er okkar hlutverk að finna réttu lausnina,“ segir Ingi Þór Harðarson, framkvæmdastjóri Bílanausts. Bílnúmerið getur verið nóg Einn af stóru kostunum við Bílanaust er að viðskiptavinurinn þarf ekki sjálfur að vera sérfræðingur í varahlutum. Á bilanaust.is er hægt að slá inn skráningarnúmer bílsins og leita að varahlutum sem passa við viðkomandi bíl. Sama hugsun gildir þegar komið er í verslanirnar, þá er það starfsfólk Bílanausts sem aðstoðar viðskiptavini við að finna réttu vöruna. Á bilanaust.is er hægt að slá inn skráningarnúmer bílsins og leita að varahlutum sem passa við viðkomandi bíl. „Oft byrjar samtalið einfaldlega á: Ég á þennan bíl og mig vantar þetta. Svo tökum við við. Fólk á ekki að þurfa að kunna vörunúmer eða tæknileg heiti til þess að fá rétta varahlutinn.“ Úrval varahluta er mikið og nær meðal annars yfir síur, hemlahluti, fjöðrunarbúnað, hjólabúnað og fjölmarga aðra slit- og viðhaldshluti. Þegar bíllinn er tregur í gang Rafgeymirinn er gott dæmi um vöru sem margir hugsa lítið um þar til bíllinn fer ekki í gang. Það getur hins vegar verið flóknara en margir halda að velja réttan rafgeymi enda eru bílar og rafkerfi þeirra mismunandi. Hjá Bílanaust er hægt að fá aðstoð við að finna rafgeymi sem hentar bílnum og þannig sleppa við ágiskanir. „Við viljum að fólk geti komið til okkar með vandamálið frekar en lausnina. Segðu okkur hvað er að gerast og við hjálpum þér að finna út úr því.“ Litlu hlutirnir sem skipta miklu máli Það þarf heldur ekki alltaf stórt vandamál til að heimsækja Bílanaust. Góðar rúðuþurrkur, réttar perur og góður ljósabúnaður skipta miklu máli þegar íslenska haustið tekur við með rigningu, myrkri og krefjandi akstursskilyrði. Sama á við um umhirðu bílsins. Í Bílanaust er mikið úrval af hreinsi- og umhirðuvörum fyrir þá sem vilja halda bílnum hreinum og verja hann fyrir krefjandi aðstæðum. Hvort sem viðskiptavinurinn er bílaáhugamaður sem vill gera allt sjálfur eða einfaldlega vill vita hvaða hreinsiefni hann eigi að kaupa, er markmiðið alltaf það sama, að finna réttu lausnina. Meira pláss fyrir næsta ferðalag Bílanaust er þó miklu meira en bara varahlutir. Þegar fjölskyldan er á leið í ferðalag getur fljótt komið í ljós að skottið er einfaldlega ekki nógu stórt. Þá koma til sögunnar vörur á borð við þverboga, farangursbox og hjólafestingar sem geta breytt því hversu mikið hægt er að taka með og hvernig plássið í bílnum nýtist. Þetta er einmitt hluti af þeirri breidd sem Bílanaust vill minna bíleigendur á. „Við erum auðvitað þekkt fyrir varahlutina, en það kemur mörgum á óvart hversu fjölbreytt úrvalið okkar er. Við viljum geta hjálpað fólki með bílinn hvort sem það er að sinna viðhaldi, þrífa hann eða undirbúa næsta ferðalag.“ Öryggi yngstu farþeganna Öryggi í bílnum er annar mikilvægur þáttur í starfsemi Bílanausts. Þar má meðal annars finna Axkid-barnabílstóla og fá ráðgjöf við val á stól. Bílanaust býður einnig Axkid-barnabílstóla til leigu, sem getur verið hentug lausn fyrir fjölskyldur sem vilja dreifa kostnaðinum eða þurfa stól í ákveðinn tíma. Rétt val og uppsetning barnabílstóls skipta miklu máli og því getur sérfræðiþekking starfsfólks verið jafn mikilvæg og varan sjálf. Fyrr á árinu flutti Bílanaust í nýjar og glæsilegar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 í Reykjavík. Ný verslun Bílanausts í Álfabakka Bílanaust flutti fyrr á árinu í nýjar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 í Reykjavík. Húsnæðið var hannað sérstaklega utan um starfsemi fyrirtækisins með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini og gera starfsemina skilvirkari. Þar er stór verslun ásamt öflugum varahlutalager og aðstöðu sem bæði almennir bíleigendur og fagfólk kunna vel að meta. En þótt aðstaðan hafi breyst er hugmyndin á bak við Bílanaust einföld. Komdu með verkefnið og við finnum lausnina með þér Bílar verða sífellt tæknilegri og fyrir marga getur verið yfirþyrmandi að átta sig á hvaða varahlutur, aukabúnaður eða viðhaldsefni er rétt. Bílanaust vill gera það einfaldara. „Okkar styrkur er ekki bara það sem við eigum í hillunum heldur fólkið sem stendur hinum megin við afgreiðsluborðið. Við viljum að fólk geti komið hingað, sagt okkur hvað það vantar eða hvað það er að reyna að leysa og fengið aðstoð.“ Þess vegna þarftu ekki að vera sérfræðingur til að versla í Bílanaust. Þú þarft bara að eiga bíl.
Bílar Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira