PSG samþykkir tilboð Liverpool í Barcola Andri Broddason skrifar 29. ágúst 2026 09:30 Bradley Barcola fer í læknisskoðun hjá Liverpool um helgina og ætti svo að skrifa undir langan samning við félagið. Sarah Stier/Getty Images PSG hefur samþykkt tilboð Liverpool í franska kantmanninn Bradley Barcola. Fyrst um sinn vildi PSG fá 145 milljónir punda fyrir leikmanninn en Liverpool borgar 123 milljónir punda fyrir hann.
Bradley Barcola mun fara í læknisskoðun til Liverpool um helgina og eftir hana er búist við að hann skrifi undir langan samning við félagið. Þetta er mikil styrking fyrir sókn Liverpool enda hefur félagið reynt að landa honum í allt sumar. Cody Gakpo, leikmaður Liverpool, hefur verið orðaður við önnur lið í sumar og með komu Barcola opnast tækifæri fyrir hann að færa sig um set. Ekki er víst hvort að hann muni fara en ekki er mikið eftir af félagsskiptaglugganum sem lokar í næstu viku. Andoni Iraola, þjálfari Liverpool, hefur sagt að hann vilji halda Gakpo en þrátt fyrir það sé hann ekki viss um framtíð hans. Barcola gekk til liðs við PSG frá Lyon árið 2023 og hefur hann verið hluti af sigursælu PSG-liði síðan þá. Hann hefur unnið frönsku úrvalsdeildina þrisvar, Meistaradeild Evrópu tvisvar og franska bikarinn tvisvar. Einnig hefur Barcola staðið sig vel með franska landsliðinu en hann skoraði þrjú mörk fyrir landsliðið á HM sem var haldið í sumar. Þar endaði franska landsliðið í fjórða sæti. Barcola er fjölbreyttur vængmaður en þó svo að hans algengasta staða sé á vinstri vængnum þá hefur hann einnig spilað á hægri vængnum og eitthvað frammi. Hann getur því leyst margar stöður af á meðan Liverpool bíður eftir að Hugo Ekitike jafni sig á meiðslum sem hann fékk undir lok síðasta tímabils.
Enski boltinn Liverpool FC Mest lesið Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Sport Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Fótbolti „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Enski boltinn Tryggvi hafði betur gegn Rubio Körfubolti Fleiri fréttir Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Sjá meira