Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Andri Broddason skrifar 30. ágúst 2026 13:15 Iliman Ndiaye, Richarlison og Cody Gakpo eru allir orðaðir við önnur lið í ensku úrvalsdeildinni. Samsett/Getty Félagsskiptaglugginn lokar á þriðjudaginn og eru liðin í ensku úrvalsdeildinni að keppast um að klára leikmannaskipti áður en hann klárast. Margir leikmenn á Englandi eru orðaðir við lið og hefur myndast ákveðin hringrás í leikmannaskiptum.
Iliman Ndiaye hefur neitað að skrifa undir nýjan samning við Everton þannig að félagið er að leitast við að selja leikmanninn. Everton virðist vera búið að samþykkja tilboð Tottenham í leikmanninn en Ndiaye hefur líka verið orðaður við Manchester City. Sömuleiðis hefur Everton sýnt áhuga á að fá Richarlison aftur til félagsins frá Tottenham. Richarlison hefur oft sagt að hann vilji fara frá Tottenham og virðist Roberto De Zerbi, þjálfari liðsins, vera búinn að fá sig fullsaddan af því. Búist er þá við að Richarlison verði í harðri baráttu við Thierno Barry um framherjastöðuna hjá Everton. Manchester City hefur í miklu að snúast þessa stundina en Cody Gakpo hefur líka verið sterklega orðaður við félagið. Sömuleiðis er samningur Jack Grealish við Manchester City að renna út og hefur hann sagt að hann langi að snúa aftur til Everton þar sem hann var að láni á síðasta tímabili. Ljóst er að nóg á eftir að gerast í leikmannaskiptum þó svo að það sé lítið eftir af glugganum. Svo virðist sem mörg lið hafi áhuga á leikmönnum hvors annars sem gerir það spennandi að sjá hvaða skipti fara í gegn því ekki geta allir leikmenn farið alls staðar.
Enski boltinn Everton FC Tottenham Hotspur Manchester City Mest lesið „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Líktu Álftanesi við Bayern München Körfubolti Aflýstu leik vegna skutlukasts Fótbolti Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Utan vallar: Það á enginn séns í kónginn Fótbolti Óvænt truflun í Njarðvík Körfubolti Fleiri fréttir Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Sjá meira