Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Agnar Már Másson skrifar 31. ágúst 2026 23:13 Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, á allan hlut í Útgerðarfélagi Reykjavíkur, sem hefur nú aukið hlut sinn í haftæknifyrirtækinu Rafnari. Samsett Mynd Útgerðarfélag Reykjavíkur, sem er í eigu Guðmundar Kristjánssonar í Brim, skilaði þriggja milljarða króna hagnaði á fyrri árshelmingi. Guðmundur hefur einnig aukið eignarhlut sinn í OK eignarhaldsfélagi, sem á bátasmiðjuna Rafnar, úr 25,21 prósentum upp í 30,70 prósent fyrir rúmlega hálfan milljarð króna.
Viðskiptablaðið greindi fyrst frá en þetta kemur fram í árshelmingsuppgjöri Útgerðarfélags Reykjavíkur (ÚR) fyrir 1. janúar til 30. júní 2026 en ÚR er allt í eigu Guðmundar, sem er forstjóri Brims. ÚR fjárfesti fyrst í Rafnari árið 2021 og hefur aukið hlut sinn síðan þá. Hann er þá orðinn sá einstaklingur sem á stærstan hlut í haftæknifyrirtækinu Rafnari, en systkinin Lilja Össurardóttir og Bjarni Össurarson Rafnar eiga hvort um sig 30,64 prósenta hlut í Rafnari í gegnum félagið Mallard ehf. Lilja og Bjarni eru börn Össurar Kristinssonar, stofnanda stoðtækjafyrirtækisins Össurar, en hann stofnaði Rafnar árið 2005. Í uppgjörinu segir að ÚR hafi keypt aukinn hlut í OK fyrir 3,9 milljónir evra, sem nemur 549 milljónum króna. Í gegnum ÚR á Guðmundur einnig 32,17 prósenta hlut í útgerðarfélaginu Brim, sem hann er gjarnan kenndur við, og einnig 40 prósenta hlut í Zym Ice, sem er móðurfélag íslenska sjávarlíftæknifyrirtækisins Unbroken. Þrír miljarðar í hagnað eftir að hafa selt í Brim Tekjur ÚR af sölu afurða til útflutnings á fyrri árshelmingi námu 45,3 milljónum evra (6,5 m.kr.) og jukust því um 5 milljónir evra (700 m.kr.) miðað við tímabilið í fyrra. Hagnaður samkvæmt rekstrarreikningi samstæðunnar nam 21 milljón evra á tímabilinu (um 3 ma.kr.), sem er um nífalt meira en á sama tíma í fyrra. Breytingin er sögð skýrast einkum af sölu á eignarhlut í Brim hf. að nafnverði 35 milljónir króna og auknum hlutdeildartekjum í Brim hf. Þá segir í uppgjörinu að hagnaður Brims hafi aukist milli ára vegna góðrar loðnuvertíðar og hagstæðrar verðþróunar á bolfiskafurðum á alþjóðamörkuðum. Eignir samstæðunnar í lok tímabilsins samkvæmt efnahagsreikningi námu 571,5 milljónum evra (80 ma. kr.) og skuldir námu 258,9 milljónum evra (36 ma. kr.). Bókfært eigið fé samstæðunnar nam 312,5 milljónum evra (44 ma. kr.) og var eiginfjárhlutfall samstæðunnar 54,7 prósent í lok tímabilsins.
Brim Sjávarútvegur Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira