Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar 8. september 2026 19:03 Eftir átta ára samfelldan hallarekstur og 866 milljarða króna uppsafnaðan halla verður ríkissjóður rekinn með afgangi á næsta ári. Þetta eru mikilvæg tímamót. Halli ríkissjóðs jókst mikið í heimsfaraldrinum en hvarf ekki þegar faraldurinn var genginn yfir. Tímabundin útgjöld urðu varanleg og kostnaðurinn hélt áfram að vaxa hraðar en tekjurnar. Sú staða var ósjálfbær og leiddi til þenslu. Ríkisstjórnin sem nú situr tók ákvörðun um að stöðva þessa þróun. Hún var ekki sjálfgefin eða auðveld. Ef það væri létt verk að snúa við hallarekstri ríkisins þá hefði það verið gert fyrir mörgum árum. Með fjárlagafrumvarpinu sem nú hefur verið lagt fram hefur markmiðið náðst. Bókhaldið stemmir. Agi ríkisins skilar sér í vasa heimilanna Að ná jafnvægi í ríkisrekstri er mikilvægasta framlag stjórnvalda til þess að verðbólga hjaðni og vextir geti lækkað. Íslenskt efnahagslíf er traust en við þekkjum þungar byrðar verðbólgunnar. Íslensk heimili hafa sýnt festu undanfarin ár og ríkið þarf að gera það líka. Með því að ríkið hætti að eyða um efni fram, líkt og hefur verið raunin um árabil, er dregið úr lánsfjárþörf og haldið aftur af eftirspurn í hagkerfinu. Þannig styður ríkisstjórnin við peningastefnuna og þar með hagsmuni heimila og fyrirtækja. Það er staðreynd að langvinnur hallarekstur hefur aukið vaxtagjöld ríkissjóðs. Skuldir ríkisins eru hóflegar í alþjóðlegum samanburði en vextirnir ekki. Þvert á móti eru þeir með því hæsta sem þekkist í okkar heimshluta. Þetta þýðir að á hverju ári renna stórar fjárhæðir í vaxtagreiðslur sem fremur ættu að fara í að standa undir opinberri þjónustu, heilbrigðiskerfinu og samgöngum. Stöðvun hallareksturs skapar forsendur fyrir lægra skuldahlutfalli og minni vaxtabyrði. Eftir því sem fram líða stundir verður þannig meira svigrúm til að sinna mikilvægum verkefnum og bregðast við óvæntum áföllum. Þetta er kjarninn í því að láta almannahagsmuni ráða umfram sérhagsmuni: Að taka erfiðar ákvarðanir núna til þess að verja velferðina til framtíðar. Skýrar áherslur Viðsnúningurinn byggist fyrst og fremst á markvissu aðhaldi og forgangsröðun. Við förum ekki fram með flötum niðurskurði. Minni aðhaldskrafa er gerð til heilbrigðis- og öldrunarþjónustu, skóla, dómstóla og löggæslu. Þess í stað er áhersla lögð á að einfalda stjórnsýsluna, fækka stöðugildum, gera opinber innkaup markvissari og nýta sameiginlega fjármuni betur. Á sama tíma og við náum jafnvægi forgangsröðum við í þágu heilbrigðisþjónustu, öryggis, barna og fjölskyldna og bættra kjara fólks sem verst stendur. Aðhaldið hefur því skýran tilgang. Orðum fylgja efndir Viðsnúningur ríkisfjármálanna er mikilvægur áfangi, en verkefninu er alls ekki lokið. Við þurfum að halda áfram á sömu braut, festa jafnvægið í sessi, lækka skuldahlutfallið og draga úr vaxtabyrði ríkissjóðs. Þannig byggjum við upp traust og aukum svigrúm til að bæta lífskjör allra í landinu á komandi árum. Við sögðumst ætla að koma ríkisfjármálunum í jafnvægi árið 2027, stöðva hallareksturinn og styðja þannig við heimilin í landinu. Orðum okkar fylgja nú efndir. Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og varaformaður Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Daði Már Kristófersson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Fjárlagafrumvarp 2027 Rekstur hins opinbera Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar