Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Aron Guðmundsson skrifar 10. september 2026 10:05 Aron Snær sýndi frábæra takta á úrtökumótinu fyrir DP World Tour í gær. seth@golf.is Aron Snær Júlíusson, kylfingur úr GKG náði þeim magnaða árangri að klára holu á albatross á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina, DP World Tour, í golfi.
Albatrossinn fékk Aron Snær á 13. holu á Golf-und Country Club Seddiner See vellinum í Þýskalandi á öðrum hring mótsins. Þegar kylfingur fer holu á albatross klárar hann hana á þremur höggum undir pari. Aron Snær fór því þessa par fimm holu á aðeins tveimur höggum. Aron Snær eftir að hafa náð albatross í Þýskalandi í gærAron Snær á Instagram Alls fór hann þennan annan hring mótsins á einu höggi undir pari, 71 höggi og er sem stendur jafn í ellefta sæti mótsins ásamt öðrum íslenskum kylfingum, þeim Dagbjarti Sigurbrandssyni og Ragnari Garðarssyni. Um úrtökumóti á fyrsta stigi fyrir Evrópumótaröðina er að ræða. Mótið er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökumótanna en kylfingar þurfa að komast í gegnum þrjú stig til þess að fá þátttökurétt á DP World Tour og óhætt að segja að þræða þurfi nálaraugað til að komast alla leið. Átta íslenskir kylfingar taka þátt á mótinu og hafa þeir verið að setja niður stór högg. Sigurður Arnar Garðarsson átti til að mynda draumahögg á fyrsta hring úrtökumótsins þegar hann fór holu í höggi á 17. holu vallarins. Þriðji hringur mótsins fer fram í dag. Alls spila 82 kylfingar á mótinu í Þýskalandi og má ætla að rúmlega fimmtungur þeirra fari áfram á annað stig.
Golf Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Liverpool með fjögurra marka endurkomu Fótbolti Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina Scheffler gaf ellefu metra pútt eftir frammíköll Sleppir verðlaunaafhendingu til að losna við herskyldu Tryggði sig á PGA-mótaröðinna þrátt fyrir að meiðsli enduðu næstum feril hans Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Stendur ekki til að hleypa LIV-kylfingum að Evrópa hafði betur gegn Bandaríkjunum Horfðu á golfmót í körfubíl Dagbjartur í góðum málum á úrtökumóti DP World Tour Aron Snær fékk albatross á úrtökumóti DP World Tour Ragnar bestur allra á úrtökumóti DP World Tour í dag Gunnlaugur Árni í samstarf með Nike: „Hefur mikla þýðingu fyrir mig“ Skulda Rahm og DeChambeau milljónir dollara Sigurður fór holu í höggi á úrtökumóti fyrir DP World Tour Átta Íslendingar mætast í Þýskalandi Enduðu tíu ára sigurgöngu Bandaríkjanna Tryggðu sig í efstu deild Evrópumótsins með öruggum sigri Sjá meira